Fara í efni
Menning

Þriðjudagsfyrirlestur um Femina Fabula

Kristján Ingimarsson. Mynd: listak

Í dag, þriðjudaginn 30. september kl. 16.15 heldur Kristján Ingimarsson fyrsta Þriðjudagsfyrirlestur haustsins í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Tilurð Femina Fabula. Þar mun hann fjalla um sýndarveruleika innsetninguna Femina Fabula, sem nú stendur yfir í Listasafninu, listrænt samstarf, vinnuaðferðir og nýjar leiðir til að finna nýja nánd við áhorfendur.

Kristján Ingimarsson er leikhúsmaður og leikhússtjóri, sem er fæddur á Íslandi en búsettur í Danmörku og þekktur fyrir líkamlegar og sjónrænar nálganir á leikhús. Hann er stofnandi og listrænn leiðtogi Kristján Ingimarsson Company og framleiðir sýningar sem fara yfir mörk leikhúss, sviðslistar, dans, myndlistar og innsetninga. Þekkt verk hans á alþjóðavettvangi eru BLAM! og ROOM 4.1 – LIVE. Hann leiðir einnig listræna samstarfið Hangar People þar sem blandast saman leikhús, innsetningar, leikjauppbygging og upplifunarform.

 

Sýndarveruleika innsetningin Femina Fabula var opnuð um helgina sem leið. Mynd: Rakel Hinriksdóttir

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Gilfélagsins.