Menning
Óskiljanlegir atburðir á eyju fyrir austan
14.04.2026 kl. 06:00
AF BÓKUM – 74
Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
Í dag skrifar Eydís Stefanía Kristjánsdóttir_ _ _
Irpa eftir Hildi Knútsdóttur
Ég gríp mér oft bækur úr hillunni á bókasafninu án þess að vita nokkuð um hvað þær eru. Bækurnar hennar Hildar eru góðar og því greip ég nýjustu bókina hennar Irpu úr hillunni. Eftir að hafa lesið nokkra kafla ákvað ég nú að kíkja aftan á hana og sá að þetta er drauga saga. Ég var ekki alveg í stuði til þess að lesa einhverja hryllingsbók en Irpa er ekki hryllingsbók, hún er bara temmilega mikil drauga saga, sem endar vel.
Edda og Atli eru hjón sem búa í Reykjavík, eru í góðum vinnum og langar til þess að stofna fjölskyldu. Eftir ítrekuð fósturlát er Edda svo brotin að hún getur ekki meir. Henni langar að taka frí frá því að hugsa um barneignir og breyta til.
Edda sér fasteignarauglýsingu þar sem heil eyja á Austurlandi er til sölu á lágu verði. Hún sýnir Atla hana og þau fara og skoða eyjuna. Þau verða mjög hrifin af henni og fá strax fullt af frábærum hugmyndum sem tengjast ferðaþjónustu. Þau selja allt sitt í Reykjavík og kaupa eyjuna. Fljótlega kemur þó í ljós hvers vegna eyjan var svona ódýr, það hvílir á henni bölvun!
Edda lendir í allskonar óskiljanlegum atburðum á eyjunni, hún fær ísbjörn í heimsókn, allt símasamband dettur út, hún sér konu uppi í hlíðinni og brjálað veður skellur á eyjunni þó að það sé blíða allstaðar í kring. Atli á erfitt með að trúa henni þegar hún segir honum frá þessum atburðum og Eddu líður eins og hún sé að missa vitið.
Ég vil alls ekki skemma bókina fyrir þeim sem eiga eftir að lesa hana en mér finnst frábært hvernig höfundur leysir bölvunina með fórnargjöf Eddu og hvernig hún lætur bókina enda vel og draugurinn er samt en þá hluti af lífi þeirra.
Létt draugaleg spennusaga sem erfitt er að leggja frá sér.
Til ykkar sem eruð ekki dugleg að lesa en langar til þess að verða duglegri að lesa þá mæli ég með bókunum hennar Hildar (Irpa, Gestir, Mandla, Urðarhvarf). Þetta eru stuttar bækur, auðlesnar og bæði skemmtilegar og spennandi. Þær eiga pottþétt eftir að kveikja lestraráhugann hjá einhverjum.