Menning
Ný akureyrsk tónlist í Akureyrarkirkju
07.11.2026 kl. 17:00
Sigrún Magna og Steinunn á tónleikum á Þórshöfn á dögunum.
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir flytja nýsmíðaða, frumsamda efnisskrá á tónleikum í Akureyrarkirkju á morgun, sunnudag kl. 17.00. Aðgangur er ókeypis.
Tónleikana kalla þær Örlög, gleði og yndishrúga, dagskrána hafa þær flutt á sjö stöðum í Þingeyjarsýslum og í Eyjafirði undanfarið, og tónleikarnir á morgun verða þeir áttundu og síðustu.
Sigrún og Steinunn fengu listamannalaun til að semja nýja tónlist og spila á átta stöðum nyrðra. „Sigrún samdi stutt lög fyrir orgel og/eða píanó sem heita Örlög, og lag við ljóðið Gleði eftir Bjarteyju Jónsdóttur. Bjartey orti ljóðið þegar hún var tíu ára og gaman er að segja frá því að lagið hefur þegar ratað í hendur Skólakórs Kársness sem ætlar að syngja það,“ segir Steinunn Arnbjörg. Sjálf samdi hún þrjú söngljóð og töluvert af hljóðfæratónist upp úr eigin ljóðabók, Yndishrúgu.
Fyrstu tónleika héldu Sigrún og Steinunn á Kópaskeri 23. ágúst og hafa síðan flutt tónlistina á Þórshöfn, Raufarhöfn, Grenivík, Dalvík, Ólafsfirði og í Reykjahlíð. Tónlistin er leikin á píanó, orgel og selló og auk þess sungin. Úr því verður skemmtileg heild, segir Steinunn Arnbjörg; mjög gaman hafi verið að takast á við þetta verkefni og þær hlakki til að bjóða upp á síðustu tónleikana í heimabænum.
„Launasjóður listamanna og Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkja verkefnið og fyrir vikið getum við haft ókeypis aðgang. Öllum er því boðið að koma að heyra þessa nýju, akureyrsku tónlist!“ segir Steinunn Arnbjörg.