Magnaður danskur kór í Akureyrarkirkju
„Frá stofnun kórsins árið 2009 hefur DUVE fest sig í sessi sem einn af fremstu kammerkórum ungs tónlistarfólks í Danmörku,“ segir í tilkynningu.
„Kórinn leggur ríka áherslu á að rækta einstakar raddir söngvaranna og þann hreina og beinskeytta hljóm sem einkennir ungar raddir. Margir meðlimir hans stefna að starfsferli sem söngvarar, hljóðfæraleikarar eða tónlistarkennarar. DUVE gegnir mikilvægu hlutverki í listrænni þróun margra efnilegra söngvara og hljóðfæraleikara á dönsku tónlistarsenunni.“
Fjölbreytt verkaval
Starfsemi DUVE spannar allt frá hefðbundnum kirkjutónleikum til tilraunakenndra verkefna á tónlistarhátíðum og óhefðbundnum tónleikastöðum. „Verkaval þeirra er fjölbreytt og nær frá fjölrödduðum söng endurreisnartímans og verkum rómantíkurinnar til nýrrar klassískrar tónlistar. Mikilvægur hluti af starfsemi kórsins er að styðja við ung tónskáld með pöntunum og frumflutningum á nýjum verkum og samstarfi við upprennandi listafólk úr ólíkum listgreinum.“
Kórinn hefur ferðast og komið fram víða og deilt danskri kórahefð meðal annars í Japan, Grænlandi, Eistlandi, Litháen, Finnlandi, Svíþjóð og Noregi.
Poul Emborg hefur frá árinu 2011 verið stjórnandi Det Unge VokalEnsemble (DUVE), og hefur kórinn öðlast alþjóðlega viðurkenningu undir hans handsleiðslu. Nýverið sneri hann aftur til danska ríkisútvarpsins, nú sem kórstjóri Kórs Sinfóníuhljómsveitar danska ríkisútvarpsins (DR Koncertkoret).
„Poul Emborg gegnir virku hlutverki í dönsku kórlífi og er eftirsóttur gestastjórnandi hjá kórum á borð við Ars Nova, Theatre of Voices, kórum Konunglegu dönsku óperunnar og Jyske Opera, auk Söngsveitar danska ríkisútvarpsins (DR Vokalensemblet).“
DUVE heldur tónleika í Akureyrarkirkju þann 5. ágúst kl 19:30 og Hofsóskirkju þann 6. ágúst kl 16:00. Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum. Auk þess kemur kórinn fram á tónleikum í Reykjavík á tónlistarhátíðinni Seiglu í Hörpu í Norðurljósum þann 8. ágúst kl 13:00 og einnig sem gestur á tónleikum Elju á sömu hátíð kl 18:00.
Frumflytja verkið Phaethon
Spurt er í tilkynningu um tónleikana: Hvað gerist þegar við öndum í takt við 2.000 ára gamalt ljóð? Getur fornt bragform lifnað við að nýju og tengt okkur við raddir sem annars virka svo langt í burtu?
Síðan segir: „Þegar við syngjum notum við ekki bara röddina – við notum allan líkamann, andardráttinn og ryþmann. Danski kammerkórinn Det Unge Vokalensemble (DUVE) skoðar hvernig tónlist getur skapað tengsl yfir tíma og fléttað saman fortíð og nútíð í sameiginlegri upplifun andardráttar, raddar og hreyfingar. Í hjarta dagskrárinnar er frumflutningur á verkinu Phaethon (2026) eftir Veroniku Voetmann, sem byggir á Metamorphoses eftir Ovid.
Verkið segir frá Phaethon sem vegna stórlætis síns missir stjórn á sólvagninum og setur af stað ljóslogandi hamfarir. Voetmann nýtir hexameter – fornt ljóðform Ovids – og umbreytir því í púls sem lifir í andardrætti, tali og óhefðbundinni raddtækni. Úr verður verk sem sveiflast á milli goðsagnakenndra hamfara og kyrrðar líkamans og skoðar ryþma sem bæði raska og róa.“
Í tilefni frumflutningsins á Phaethon flytur DUVE einnig verk eftir norrænu tónskáldin Vagn Holmboe og Sven-David Sandström, ásamt verkum eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Báru Grímsdóttur og Önnu Þorvaldsdóttur.