Menning
Kór Hallgrímskirkju í Akureyrarkirkju í dag
28.02.2026 kl. 06:00
Kór Hallgrímskirkju heldur í dag sögulega tónleika í Akureyrarkirkju; fyrstu tónleika sína utan höfuðborgarsvæðisins í. Þeir eru undir yfirskriftinni Önd mín af öllum mætti, og flutt verða afar áhugaverð verk.
- Tónleikarnir hefjast kl. 17.00 í dag, öll eru hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis.
Kórinn var stofnaður haustið 2021 og fagnar því fimm ára starfsafmæli á þessu ári undir stjórn Steinars Loga Helgasonar. Í haust mun kórinn gefa út sinn fyrsta hljómdisk með nýjum íslenskum verkum við latneska texta sem samin eru sérstaklega fyrir kórinn og stjórnanda hans.
Á tónleikunum í Akureyrarkirkju gefst áheyrendum kostur á að heyra þrjú þessara verka: Hosanna filio David eftir Finn Karlsson, Psalmus 116 eftir Hildigunni Rúnarsdóttur og Veni Sancte Spiritus eftir Báru Grímsdóttur. Síðastnefnda verkið er fyrir kór og orgel og tileinkað Birni Steinari Sólbergssyni, organista og tónlistarstjóra Hallgrímskirkju.

Björn Steinar Sólbergsson, organisti og tónlistarstjóri í Hallgrímskirkju, til vinstri, og Steinar Logi Helgason kórstjóri.
Björn Steinar er Norðlendingum að góðu kunnur, en hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í tuttugu ár áður en hann tók við starfinu í Hallgrímskirkja. Hann hefur haldið fjölda einleikstónleika hérlendis og erlendis og komið fram sem einleikari með ýmsum hljómsveitum.
Á efnisskránni eru einnig nýleg verk eftir tónskáld búsett í Eyjafirði, Daníel Þorsteinsson og Þorvald Örn Davíðsson, sem bæði voru samin í tilefni af 350 ára ártíð sálmaskáldsins Hallgríms Péturssonar árið 2024 og frumflutt á vígsluafmæli Hallgrímskirkju þann 27. október 2024.
Auk íslensku verkanna flytur kórinn tónsmíðar eftir erlend tónskáld, þar á meðal The Deer’s Cry eftir Arvo Pärt, Media vita eftir Kerensu Briggs og hið áhrifamikla verk Song for Athene eftir John Tavener. Einnig verður flutt eitt af meistaraverkum Felix Mendelssohn, átta radda mótettan Richte mich, Gott (op. 78 nr. 2), sem sameinar dramatíska tjáningu og andlega dýpt.
„Íslensk kórtónlist skipar sérstakan sess í starfi kórsins og má þar nefna verk eftir Sigurð Sævarsson og Þorkel Sigurbjörnsson við hinn forna sálm Heyr, himna smiður eftir Kolbeinn Tumason, en góðvinur kórsins, tónskáldið Sigurður Sævarsson samdi sálmforleik yfir sálminn sem hann nefnir „Himna smiður“ sem Björn Steinar mun leika á orgelið í Akureyrarkirkju,“ segir í tilkynningu frá kórnum.
Kór Hallgrímskirkju telur um 70 félaga og hefur frá stofnun tekið virkan þátt í helgihaldi, tónleikahaldi og upptökum. Kórinn leggur ríka áherslu á flutning íslenskrar kórtónlistar og frumflutning nýrra verka, auk samstarfs við ýmsa hljóðfæraleikara og hljómsveitir.
„Tónleikarnir í Akureyrarkirkju marka bæði tímamót og nýtt skref í starfi kórsins; brú milli landshluta, kynslóða og tónlistarstefna, þar sem fornir sálmar, samtímatónlist og alþjóðleg kórverk mætast í lifandi flutningi,“ segir í tilkynningunni.