Hús dagsins: Hríseyjargata 6
100 ÁRA HÚS VI
Neðarlega á Oddeyrinni, nokkurn veginn á mörkum Oddeyrar sjálfrar og Oddeyrartanga liggur ein af mörgum þvergötunum út úr Strandgötu. Á Tanganum eru þvergöturnar kenndar við örnefni út með Eyjafirði beggja vegna, sbr. Hjalteyrargata, Laufásgata, Kaldbaksgata og Grímseyjargata en efst og vestust þessara gatna er Hríseyjargata. Er hún frábrugðin framangreindum götum að því leyti, að hún er eingöngu íbúðagata en við hinar göturnar eru fyrst og fremst iðnaður og verkstæði. Þá eru húsin við Hríseyjargötu mikið eldri, sérstaklega sunnan Gránufélagsgötunnar. Þar má líklega elsta steinsteypuhús Akureyrar, Steinöld, við Hríseyjargötu 1, sem byggð er 1903. Í raun er aðeins eitt hús sem við Hríseyjargötu sunnan Gránufélagsgötu, sem á árinu 2026 hefur ekki náð 100 ára aldri; hin 89 ára Hríseyjargata 3. Eitt hús við Hríseyjargötu á 100 ára afmæli í ár. Það er Hríseyjargata 6, sem er eitt margra húsa frá 3. áratug 20. aldar, sem Sveinbjörn Jónsson teiknaði fyrir Jónas nokkurn Jónasson frá Snæfellsnesi.

Það var þann 5. júlí árið 1926, að bygginganefnd heimilaði Jónasi Jónassyni smið að reisa íbúðarhús úr steinsteypu, 11x9 m, tvílyft á háum kjallara og með útbyggingu, 3x2,5m á lóð austan Hríseyjargötu næst norðan við hús Kristjáns bakara [Strandgötu 41 og Hríseyjargötu 2] (sbr. Bygg.nefnd Ak. 1926: nr. 586). Rúmum tveimur mánuðum síðar óskaði Jónas eftir því við bygginganefnd að fá að lækka húsið um eina hæð, en teikningar Sveinbjarnar gerðu ráð fyrir tveimur hæðum á háum kjallara (í raun þremur hæðum) og risi. Var Jónasi heimilað þetta, með því skilyrði, að risþak yrði ekki lægra en 2 metrar. Og tekur bygginganefnd það fram, […]að húsið fæst ekki byggt hærra síðar [ og hananú!]. Réttri öld eftir að þessa bókun stendur þetta ennþá, húsið hefur ekki verið hækkað.
Lýsingar og húsbyggjendur
Hríseyjargata 6 er tvílyft steinhús á lágum grunni með lágu risi. Á miðri framhlið er trapisulaga útskot, svokallað karnap, á efri hæð með lauklaga þaki og stallað að neðan. Krosspóstar eru í flestum gluggum og á suðurstafni steyptar tröppur að inngöngudyrum á efri. Útskot eða stigahús er á norðarlega vesturhlið, nokkurn vegin jafn hátt þakbrún. Grunnflötur, skv. uppmælingarteikningum Þrastar Sigurðssonar er 10,75x8,81m, útitröppur 1,20x6,325m og stigahús 2,62x3,04m.
Jónas Jónasson var sem fyrr segir, af Snæfellsnesi, fæddur á Ytri-Bug í Helgafellsveit á jóladag árið 1873 og skráður til heimilis í Jónasarbæ í Stykkishólmi árið 1880. Hann var kvæntur Ingibjörgu Bergsdóttur úr Reykjavík, en hún var fædd í Pálshúsum á Seltjarnarnesi. Þau höfðu áður verið búsett m.a. á Þingeyri í Dýrafirði og á Snæfellsnesi, nánar tiltekið á Hellissandi þar sem Jónas stundaði smíðar og sjómennsku. Þau voru einnig Hingað komið vann hann við smíðar og var einnig fiskmatsmaður. Það er reyndar ekki víst, að byggingu hússins hafi verið lokið þegar árið 1926 rann sitt skeið og kannski telst það fremur byggt 1927; byggingarleyfið veitt á sumri og athugasemd við það síðla hausts. A.m.k. var ekki flutt inn í húsið, þegar manntal var tekið í októbermánuði en í október 1927 búa hér 12 manns í fjórum íbúðarrýmum.

En rétt áður en tekið var manntal árið 1927, nánar tiltekið þann 21. september, var Hríseyjargata 6 metin til brunabóta og eins og lög gerðu ráð fyrir, skrifuð upp lýsing á húsinu. Var hún eftirfarandi: Íbúðarhús 2 hæðir á lágum grunni með lágu risi, útskot á framhlið efri hæðar. Skúr við bakhlið, jafnhár húsinu. Á neðri hæð við framhlið 2 stofur forstofa við bakhlið […] [hér virðist eldhús hafa verið skrifað ofan í 2 stofur eða öfugt], þvottahús og forstofa og salerni. Á efri hæð við framhlið 3 stofur forstofa og gangur við bakhlið 3 stofur, eldhús og forstofa. Efsta loft óinréttað. 2 reykháfar, miðstöðvarhitun á eftri hæð og ofnar á neðri hæð. Vatns-, raf,- og skólpleiðslur. Lengd: 10,7m, breidd 8,5m, hæð 6,5m 18 gluggar, útbygging á bakhlið 2,5x2,8x6,5m. Útveggir steinsteyptir þak úr timbri [illlæsilegt, virðist standa „Herlláles“ eða eitthvað í þá áttina um þakklæðninguna]. Miðstöðvarketill, 2 eldavélar, 2 ofnar 1 þvottapottur (Brunabótafélag Íslands 1927: nr. 269).

Stiklað á stóru úr íbúasögu fram á 20. öld
Þar ber fyrst að nefna téð Jónas og Ingibjörgu en einnig er skráður til heimilis ásamt þeim sonur þeirra, Gústav Geir Berg. Sá varð síðar rafvirki og lengi vel búsettur og starfaði í Gránufélagsgötu 18. Þá söng hann með Smárakvartettinum á Akureyri. Næst á blaði eru Guðmundur Halldórsson daglaunamaður og Ingibjörg Sigurðardóttir húsfrú, þá Jón Þorsteinsson járnsmiður, Sigurveig Oddsdóttir húsfreyja og dóttir þeirra, Fanney. Neðst á blaði eru Þorsteinn Sigurðsson mótoristi (sem mun eldra heiti á vélstjóra) og Emilía Jónasdóttir en hún var einmitt dóttir þeirra Jónasar og Ingibjargar. Hér virðist yfirleitt hafa verið um að ræða leigjendur sem stöldruðu við í skemmri tíma, því að frátaldri stórfjölskyldunni að vestan var allt framangreint fólk á bak og burt úr Hríseyjargötu 6 árið á eftir. Þá eru m.a. búsett hér þau Egill Tómasson og Sigríður H. Jónsdóttir, ásamt þremur sonum þeirra, Hólmsteini, Jóni og Jóhanni. Þau hafa ekki búið hér lengi, því þau reistu hús við Eiðsvallagötu 24 tveimur árum síðar. Hólmsteinn Egilsson síðar bifreiðarstjóri sem rak lengi Möl og Sand, reisti svo annað hús utar á eyrinni, Eyrarveg 8. Ingibjörg Sigurðardóttir lést árið 1932 en Jónas Jónasson, sem lést 1958, er hér síðast skráður til heimilis árið 1939. Það ár eru einnig búsett í Hríseyjargötu 6 þau Skapti Áskelsson trésmiður og Guðfinna Hallgrímsdóttir og sonur þeirra, Hallgrímur, en Skapti varð síðar þekktur sem Skapti í Slippnum. Þau eru einnig búsett hér árið 1940 en þá er eigandi hússins Tryggvi Hallgrímsson skipstjóri frá Grenivík og hér búsettur ásamt konu sinni, Pálínu Tryggvadóttur frá Grund í Arnarneshreppi. Tryggvi, sem hét fullu nafni Indriði Tryggvi Hallgrímsson, og Pálína eru hér enn eigendur og íbúar árið 1954 og þá er einnig búsettur hér ungur maður, bakarameistari, að nafni Jón Kjartansson frá Pálmholti í Arnarneshreppi. Jón frá Pálmholti kannast eflaust margir við sem helsta forvígismann Leigjendasamtakanna um áratugaskeið en auk þess var hann afkastamikill rithöfundur. Var hann einlægur talsmaður láglaunafólks um árabil og ritaði fjölda greina til stuðnings þeirra málstað. Hér er Verkfallssálmur Jóns í Pálmholti:
Verkamaður, í dag er þinn dagur,
í dag skaltu öruggur stíga þín skref.
Í dag skaltu fylkja liði og sýna mátt þinn.
Í dag skaltu rísa upp og mótmæla
svo lengi munist
sex vikna herferð sjúks auðvalds
á hendur þér og börnum þínum.
Í dag skaltu minna heiminn á,
að barn þitt biður um brauð.
Í dag skaltu láta það berast
að kona þín þrái gott heimili.
Í dag verður þess minnst
að hið vinnandi fólk
stendur undir þjóðinni,
fæðir hana og klæðir,
en verður sjálft að hungra
og ganga fátæklega klætt.
Í dag skal minnst misréttis
þess auðvaldsþjóðfélags, sem sveltir börn.
Í dag skal þess minnst
að verkamenn eiga réttinn.
Í dag skulu allir vinnandi menn
fylkja liði til baráttu
fyrir samtökum sínum
og þar með tilveru sinni.
Verkamaður, í dag skaltu minnast
þess hungurs, sem börn þín hafa þolað.
Í dag skaltu heilsa þeim mönnum,
sem hafa borið á þig þjófsorð.
Í dag skaltu þakka þau högg
er þú hefur hlotið.
(Jón Kjartansson 1955: 9)
Niðurlag
Margir hafa búið í Hríseyjargötu í lengri eða skemmri tíma eftir miðja 20. öld, um áratugaskeið, fram yfir aldamótin 2000, bjuggu hér á efri hæðinni Guðjón Björn Ásmundsson (1935-2006), sem lengst af vann við hjólbarðaviðgerðir og Ólöf Guðbjörg Tryggvadóttir (1932-2013) verkakona m.a. í sútunarverksmiðjunni á Gleráreyrum.
Hríseyjargata 6 er reisulegt og skrautlegt hús, og gefur útskotið á framhlið því óneitanlega sinn sérstaka svip. Húsið er í góðri hirðu og lóðin, sem er nokkuð víðlend miðað við Oddeyri gróskumikil og vel hirt. Líkt og frá upphafi eru tvær íbúðir í húsinu. Í Húsakönnun 2020 hlýtur húsið hátt varðveislugildi, sem snoturt hús sem fellur vel inn í umhverfi sitt (sbr. Bjarki Jóhannesson 2021: 164). Meðfylgjandi myndir eru teknar 8. september 2026 og 15. janúar 2012.
Heimildir:
Bjarki Jóhannesson. 2021. Húsakönnun fyrir Oddeyri 2020. Akureyrarbær. Aðgengilegt á pdf-formi á slóðinni Húsakönnun fyrir Oddeyri 2020.
Brunabótafélag Íslands. 1929. Virðingabók Brunabótafélags Íslands, Akureyrarumboð 1922-1929. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vef safnsins: https://issuu.com/heradsskjalasafnakureyri/docs/f117_3_virdingabok_1922_1929?fr=sMTZmNDQzODI5ODU Hskj.Ak. F-117/3.
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 583, 10. apríl 1926. Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vef safnsins: https://www.herak.is/is/skjalavefur/sveitarfelog/akureyrarbaer-1/gjordabaekur
Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson. 1996. Byggingameistari í stein og stál; Saga Sveinbjarnar Jónssonar í Ofnasmiðjunni. Reykjavík: Fjölvi.
Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson.1995. Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri. Aðgengileg á pdf-formi á slóðinni: Oddeyri. Húsakönnun.
Jón Kjartansson frá Pálmholti 1955: Verkfallssálmur. Í Þjóðviljanum 97.tbl. 20. árg. 1. maí, bls. 9.
Ýmis manntöl á vef Héraðsskjalasafns og manntal.is, greinar á timarit.is; sjá tengla í texta.