Hús dagsins: Rifkelsstaðir; Ia og IIa - elsta íbúðarhúsið
100 ÁRA HÚS II
Í þjóðskrá eða islendingabok.is finnst enginn einstaklingur með nafninu Rifkell. Í Eyjafjarðarsveit, nánar tiltekið í gamla Öngulsstaðahreppi, neðarlega í hlíðum Möðruvallafjalls, skammt sunnan hins hrikalega Munkaþverárgils, stendur hins vegar bærinn Rifkelsstaðir. Þar má heita margbýlt og standa þar nokkur íbúðarhús á torfunni neðan þjóðvegarins. Það elsta er aldargamalt í ár.

Upprunalegt heiti Rifkelsstaða mun vera Hripkelsstaðir (það finnst heldur enginn Hripkell á islendingabok.is). Jörðin telst væntanlega landnámsjörð en hún lá raunar undir Þverárjörðina og þar var til forna hof Freys. Þverá þessi hlaut síðar nafnið Munkaþverá, en eðlilega voru engir munkar þar fyrstu aldirnar; þeir komu vitaskuld með klaustrinu, sem kom með kristninni. Segir svo í Víga-Glúms sögu: Þórir hét maður. Hann bjó á Espihóli. Hann var sonur Hámundar heljarskinns og Ingunnar Helgadóttur hins magra. Hann átti ÞórdísiKaðalsdóttur. Þeirra börn voru Þórarinn og Þorvaldur krókur er bjó á Grund í Eyjafirði og Þorgrímur er bjó í Möðrufelli og Ingunn er átti Þórður Freysgoði og Vigdís er átti Sigmundur. […] Hof Freys var þar fyrir sunnan ána á Hripkelsstöðum (Víga-Glúms saga: 8). Þannig eru fyrstu ábúendur Rifkelsstaða sem sögur fara af þau Ingunn Þórisdóttir, langafabarn Helga magra og Þórður Össurarson Freysgoði. Þau hafa búið hér á síðari hluta 10. aldar, en Freysgoðinn lést um 995, fimm árum fyrir kristnitöku hérlendis. (Dánardægur Ingunnar virðist óþekkt). Gegnum hofið á Rifkelsstöðum og Þórð hefur náðst einstakt samband við Frey, því á Rifkelsstöðum var akurinn Vitaðsgjafi, sem var þeirrar náttúru gæddur, að verða aldrei ófrær.
Rifkelsstaðir heyrðu áfram undir Munkaþverá og var ein af mörgum jörðum, sem lágu undir klaustrið þar. Nafn jarðarinnar sést næst í rituðum heimildum (á eftir Víga-Glúms sögu) í eignaskrá klaustursins árið 1446 og hefur þá breyst úr Hripkelsstöðum í Rifkelsstaði. Árið 1712, þegar unnin var jarðabók, taldist jörðin konungseign og lá undir klaustrið. Um tvöhundruð árum síðar bjó hér Hallgrímur Hallgrímsson, hreppstjóri Öngulsstaðahrepps til áratuga og fyrsti framkvæmdastjóri Kaupfélags Eyfirðinga (sem upprunalega hét Pöntunarfélag Eyfirðinga) eða KEA. Hann var lengi vel einn helsti baráttumaður gegn fjárkláða hérlendis. Hallgrímur hlaut heiðursmerki Dannebrogs árið 1905 og hina íslensku Fálkaorðu. Hann er skráður hér eigandi og ábúandi frá 1879 til 1916 en varði efri árum í Kaupangi (1920) og síðast á Akureyri. Hallgrímur mun hafa reist framhús úr timbri (framþil úr timbri en torf á aðra vegu) við torfbæinn, sem til staðar á Rifkelsstöðum. Síðar vék það hús fyrir steinsteypunni.

Árið 1916 fluttust á Rifkelsstaði þau Halldór Benjamínsson frá Ytri-Tjörnum og Marselína Jónasdóttir frá Bringu. Þau höfðu áður búið á Sigtúnum og þar fæddust börnin þeirra, Garðar, Jónas og Halldóra Sigríður. Við flutninginn yfir ána frá Sigtúnum hefur fjölskyldan getað nýtt nýlega og veglega steinsteypta brú yfir Munkaþverána eða Þverá efri en sú var byggð árið 1913 og er – ótrúlegt en satt – enn í notkun sem undirstaða núverandi brúargólfs (frá 1958). Það má geta sér þess til, að við steypu brúarinnar, sem og steinsteyptra íbúðarhúsa, sem risu á torfunni beggja árinnar á næstu árum, hafi verið nýttur sandur af eyrum Munkaþverár. Honum hefur áin skilað á þeim tugþúsundum ára sem árnar tvær, Þverá og Mjaðmá hafa nagað úr botni dalanna, sem ísaldarjökullinn var svo almennilegur að skilja eftir. Stundum hefur áin gerst nokkuð stórtæk í þessum flutningi t.d. í vatnavöxtum árið 1926, er hún kaffærði ágæt engjalönd Rifkelsstaðabænda neðan brekkunnar. En það var um vorið, það ár, að Rifkelsstaðir rötuðu á síður búnaðarblaðsins Freys, ekki þó vegna flóða, heldur segir þar: Steinsteypuhús til íbúðar er verið að byggja á Rifkelsstöðum og Syðra- Laugalandi (Án höf 1926:50). Þess má reyndar geta, að framar og handan Eyjafjarðarár reis einnig veglegt steinsteypuhús í Saurbæjarhreppi, nánar tiltekið í Hvassafelli.
Elsta íbúðarhúsinu má skipta, eftir byggingarlagi, í suður - og norðurhluta. Norðurhluti er tvílyftur með lágu risi en suðurhlutinn einlyftur með háu risi. Undir öllu húsinu er hár kjallari eða sökkull. Krosspóstar eru í flestum gluggum, bárujárn á þaki og veggir múrhúðaðir. Grunnflötur hússins mælist,á loftmyndum nærri 17x8,2m. Sambyggt við húsið norðanmegin er gömul hlaða, sem er hluti annarrar samstæðu eldri skepnuhúsa til vesturs.
Væntanlega munu þeir feðgar, Halldór Benjamínsson og synir hans, Jónas og Garðar hafa staðið fyrir byggingu steinsteypuhússins árið 1926. Hver teiknaði húsið fylgir ekki sögunni, en vitað er að Sveinbjörn Jónsson, byggingafræðingur, teiknaði húsið á Syðra-Laugalandi, sem byggt var samsumars og vorið eftir teiknaði hann íbúðarhús fyrir bróður Halldórs, Kristján Benjamínsson á Ytri- Tjörnum.

Í úttektarbók Öngulsstaðahrepps frá árunum 1893 til 1927 birtist afar ítarleg lýsing á Rifkelsstaðahúsinu. Hún er undirrituð af téðum Hallgrími Hallgrímssyni og Bjarna Benediktssyni og dagsett 17. febrúar 1927. Þeir lýstu Rifkelsstaðahúsinu eftirfarandi:
Íbúðarhús byggt 1926 15x13 álnir. Hæð af kjallaragólfi upp að risi 9 ½ alin. Útveggir allir úr einfaldri steinsteypu 12 þml. [þumlungar] á þykkt í kjallara, á stofuhæð 9 þml. á porti og stöfnum 8 þml.
Í kjallara eru skilrúm úr steinsteypu 5 og 6 þml. þykk. Sem næst 2 /3 af kjallaragólfi er steypt. Á kjallara eru 6 gluggar 2 6 rúðu og 4 2ja rúðu. 3 hurðir eru í kjallara.
Stofuhæð skiptist í 4 herbergi og gang eftir miðju. Herbergin eru baðstofa, eldhús og tvö svefnherbergi. Innan á alla útveggi er þiljað með panel með 5 þml. þykku mómylsnutróði. Skilrúm eru öll úr tvöföldu paneli óstoppuðu; [ekki einangrun í innveggjum] baðstofa og svefnherbergi pappalögð. Svefnherbergi betrekt yfir pappa en hitt málað. Eldhús ópappalagt en málað. Gólf öll olíuborin. 7 hurðir skrálæstar og málaðar 8 6 rúðu gluggar. Listar eru kringum alla hurðir og glugga og meðfram lofti. Af stofuhæð liggur stigi til kjallara og annar uppá loft.
Á porthæð er ein stofa fullgerð í suðurenda 5x6álnir með einum 6 rúðuglugga og tveimur spjaldahurðum. Pappalagðir [svo] veggir og betrektir, málað loft og olíuborið gólf. Listar meðfram glugga og hurðir og meðfram lofti. Til beggja hliða við stofu þessa eru risherbergi með einum glugga hvert annað fullgert af öðru en betrekki, en hitt skemmra á veg komið. Norðurhlið hæðarinnar er klæddur innan á sperrur að austan og helmingur af norðurstafni. Á austurhlið norðurloftsins er afþiljað herbergi með glugga, en ópappalagt. Sömuleiðis fullgerður klæðaskápur. Á norðurstafni eru tveir 6 rúðu gluggar. Rishæð er 4 álnir og 15 þumlungar. Þakið með plægðum borðum á sperrum með pappa yfir.
Við norðurenda hússins er skúr úr steinsteypu með járnþaki yfir að stærð 4x13 álnir. Veggþykkt 5 þml. 2 gluggar og tvær útidyr með hurðum. Úr skúrnum er gengið á stofuhæð og niður í kjallara. Vatnsleiðsla er í húsinu með 3 krönum. Miðstöðvarhitun með 4 ofnum. Húsinu fylgir eldavél með steyptum tvöföldum reykháf (Hallgrímur Hallgrímsson, Bjarni Benediktsson 1927: 530-532).
Húsið hefur með öðrum orðum verið nánast tilbúið, að frátöldu veggfóðri og þiljum í fáeinum herbergjum snemma á útmánuðum 1927. Það sama ár telst Garðar Halldórsson taka við Rifkelsstöðum skv. ábúendatölum. Átta árum síðar virðist jörðin skiptast í Rifkelsstaði I og Rifkelsstaði II og tekur þá Jónas Halldórsson, bróðir Garðars við þeim hluta jarðarinnar. Þó jörðin væri tvískipt var aðeins eitt íbúðarhús. Þegar leið fram á fimmta áratuginn var ljóst, að stækka þurfti húsið og það var gert árið 1946, eftir teikningum Snorra Guðmundssonar. Greinarhöfundur telur þó ljóst, að þær teikningar sem aðgengilegar eru á landupplýsingakerfi Eyjafjarðarsveitar sem vissulega sýna viðbygginguna frá 1946, séu annað hvort eitthvað yngri eða skrifað hafi verið á þær eftir á. Því þar eru eignarhlutarnir merktir Hörður og Gunnar. Þar er um væntanlega um að ræða bræðrasynina Hörð Garðarsson og Gunnar Jónasson en þeir tóku ekki við jörðunum fyrr en töluvert síðar.
Miðað við þá ítarlegu lýsingu hússins, sem liggur fyrir frá 1927, er e.t.v. borið í bakkafullan lækinn, að útlista brunabótamatslýsingu Rifkelsstaðahússins frá því 1934. Þar hefur þó metrakerfið verið innleitt, og húsið sagt 9,2x8m að grunnfleti og 7,7m á hæð. Miðstöðvarofnar eru orðnir sex að tölu og eldavélarnar orðnar tvær. Þegar húsið var metið til brunabóta árið 1956 er svo komin olíumiðstöð og raflýsing.

Garðar Halldórsson (1900-1961) var kvæntur Huldu Davíðsdóttur (1900-1986). Svo vill til, að bæði voru þau fædd á Sigtúnum aldamótaárið 1900, með ríflega sex mánaða millibili, Hulda þann 13. júní en Garðar 30. desember. Hulda ólst m.a. upp í Daðagerði, sem var hjáleiga í landi Munkaþverár, nú löngu farin í eyði. Garðar var auk þess að stunda hér búskap, virkur í ýmsum félagsstörfum og embættum, var m.a. oddviti Öngulsstaðahrepps frá 1946 til æviloka og sat á alþingi frá 1959. Garðar lést í mars 1961, aðeins sextugur að aldri. Jónas Halldórsson (1904-1987) var kvæntur Þóru Kristjánsdóttur (1909-1995) frá Garðsá. Þau áttu, sem fyrr segir jörðina Rifkelsstaði II, eftir að jörðinni var skipt árið 1935 (skv. Eyfirðingum). Jónas var, líkt og bróðir hans, mjög virkur í hinum ýmsum félags- og embættisstörfum m.a. formaður Ungmennafélagsins Ársólar um árabil og var einnig ötull við skráningu hinna ýmsu heimilda.
Upp úr miðri 20. öld tók Hörður Garðarsson við búinu á Rifkelsstöðum I. Hann var kvæntur Rósfríði Vilhjálmsdóttur frá Akureyri. Samkvæmt Byggðum Eyjafjarðar hófu þau búskap 1950 en skv. Eyfirðingum teljast þau taka við árið 1954. En þau reistu hins vegar, um 1961, nýtt íbúðarhús fyrir Rifkelsstaði I, steinsnar sunnan við íbúðarhúsið frá 1926. Jónas og Þóra sátu Rifkelsstaði II og bjuggu í gamla íbúðarhúsinu. Enda þótt I-jörðin sé nyrðri hlutinn er það engu að síður svo, að gamla íbúðarhúsið, sem tilheyrði syðri jörðinni, stendur um 70 metrum norðan við nýja íbúðarhúsið fyrir nyrðri jörðina. Árið 1971, skv. Eyfirðingum, tók Gunnar Jónasson við Rifkelsstöðum II og árið 1977 reistu hann og kona hans, Valgerður Schiöth, nýtt íbúðarhús neðar í brekkunum.
Sem fyrr segir er Rifkelsstaðajörðin tvískipt og mun Rifkelsstaðir I samsvara norðurhlutanum og Rifkelsstaðir II suðurhlutanum. Árið 1962 reis nýtt hús á Rifkelsstöðum I og stendur það fáeina tugi metra sunnan við elsta íbúðarhúsið. Tilheyrði elsta íbúðarhúsið þá II jörðinni, allt þar til nýtt íbúðarhús var reist á þeirri jörð, 1977, skammt neðan við fyrri íbúðarhúsin. Núverandi íbúðarhús á Rifkelsstöðum I stendur allnokkru norðar og ofar en fyrri Rifkelsstaðahús, en það var reist árið 1981. Þá varð „gamla nýja“ íbúðarhúsið á Rifkelsstöðum I, Rifkelsstaðir III. Ábúendur Rifkelsstaða I á þeim tíma voru þau Bjarni Kristinsson og Aðalheiður Harðardóttir, Garðarssonar á Rifkelsstöðum.
Þegar byggðum Eyjafjarðar var fyrst gerð skil á prenti var eftirfarandi húsakostur á Rifkelsstöðum II: Íbúðarhús b. í áföngum fyrst 1926 og viðbót 1946, 2 hæðir 484 m3; fjós f. 23 kýr og 16 geldneyti, fjárhús f. 110 fjár, hesthús, hlöður f. 1600 hesta [af heyi], véla og verkfæra – og smíðahús 200 m2, kartöflugeymsla fyrir 200 tunnur. Allt byggingar úr steinsteypu, allt byggt eftir 1926. Túnstærð 30,02 ha. Töðufengur um 1400 hestar og um 100 hestar úthey. Kartöfluland um ½ ha. Áhöfn 23 kýr, 10 geldneyti, 108 fjár og um 50 hænsni (Ármann Dalmannsson, Eggert Davíðsson, Sveinn Jónsson 1973: 364). Ábúendur voru sem fyrr segir Jónas Halldórsson og Þóra Kristjánsdóttir, ásamt 3 af 6 börnum þeirra.

Byggingarára annarra bygginga en íbúðarhúsa var almennt ekki getið í fyrstu útgáfu Byggða Eyjafjarðar. Hins vegar var upplýst um þau í næstu útgáfu sams konar ritverks, tveimur áratugum síðar. Árið 1990 voru ábúendur Rifkelsstaða II þau Gunnar Jónasson og Valgerður Schiöth frá Hólshúsum í Hrafnagilshreppi. Þá var ræktað land 47,5 hektarar og framfleytti það 54 nautgripum (þar af 37 kúm), 48 fjár og tveimur hrossum. Byggingar voru, auk þeirra sem getið var 1970, 44 bása fjós byggt 1972, hlaða byggð 1971, heymetisturn byggðu 1987 og fjósi frá 1949 hafði verið breytt í trésmíðaverkstæði. Þá hafði fjárhúsi frá 1954 verið breytt í kálfahús. Eldri byggingar voru byggðar 1934 (geymsla og vélageymsla), 1939 (garðávaxtageymsla), 1948-1949 (geymslur) 1954 (fjárhús og eldri hlaða) og vélageymsla byggð 1957 (sbr. Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon 1993: 956-957). Og síðast en ekki síst, höfðu þau Gunnar og Valgerður reist nýtt íbúðarhús neðar í brekkunum, en það var 1977. Skemmst er frá því, að segja, að þau búa enn á Rifkelsstöðum II. Árið 2010 er Jónas, sonur þeirra, orðinn ábúandi ásamt þeim. Ræktað land er 51,4 hektarar og nautgripir alls 70 (þar af 41 kýr) og 23 fjár. Þá má nefna, að þar er garðávaxtageymslan sögð byggð 1946 (1939 í fyrri bókum), getið er gripahúss, sem byggt er 1961, reykhúss byggt 1947 og frá útgáfu síðustu bóka hafði risið vélageymsla árið 1995 (Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson 2013: 514-515). En hvað varð um íbúðarhúsið frá 1926 þegar nýtt hús var byggt fyrir jörð II á Rifkelsstöðum? Þar var einfaldlega búið áfram og skiptist í tvo eignarhluta, Rifkelsstaði Ia og IIa, þar sem neðri hæðin var IIa.
Árið 1990 er Kristján Jónasson (1937-1998) búsettur á neðri hæð gamla Rifkelsstaðahússins, þ.e.a.s. IIa og fram kemur, að ekki sé búið á efri hæðinni. Þar er móðir hans, téð Þóra Kristjánsdóttir, einnig til heimilis, en Jónas Halldórsson lést árið 1987, sem fyrr segir. Kristján Jónasson, eða Stjáni eins og hann var ætíð nefndur, stundaði smíðar og var þekktur sem þúsundþjalasmiður. Leikfélög hreppsins, þ.m.t. Freyvangsleikhúsið nutu mjög krafta hans til hinsta dags, en hann lést fyrir aldur fram af slysförum vorið 1998. Í minningargrein um Kristján segja félagar hans úr Freyvangsleikhúsinu: Æi, hvar er nú Stjáni, getur hann ekki...? Nei, nú getur Stjáni ekki lengur, nú kemur hann ekki oftar í Freyvang með verkfæratöskuna sína, leitar að hamrinum, skrúfar hér, neglir þar, slær upp sviðsmynd með félögum sínum […] Vinnudagurinn varð oft býsna langur og margt var borið fullsmíðað heiman úr smíðahúsi til að bæta úr smáræði, gera aðeins hönduglegra það sem betur mátti fara (Freyvangsleikhúsfélagar 1998: 50). Freyvangsleikhúsið hefur löngum haldið sérstakar „Stjánasýningar“, þar sem ágóðinn rennur í minningarsjóð í hans nafni.
Árið 2010 er gamla íbúðarhúsið á Rifkelsstöðum sem fyrr tvískipt eign í eigu ábúenda Rifkelsstaða, þar sem efri hæðin tilheyrir I-jörðinni og sú neðri Rifkelsstöðum II. Þá eru eigendur Rifkelsstaða I þau Atli Hörður Bjarnason og Jóhanna Rannveig Kjartansdóttir og téð, Gunnar og Valgerður, eigendur Rifkelsstaða II. Atli og Gunnar eru báðir afkomendur þeirra Halldórs Benjamínssonar og Marselínu Jónasdóttur, sem hingað fluttust árið 1916 úr Sigtúnum; þannig hefur Rifkelsstaðajörðin verið í eigu og ábúð sömu ættar í rúma öld. Íbúar Rifkelsstaða IIa árið 2010 eru þau Linda Björg Reynisdóttir og Þórir Gunnarsson (Jónassonar á Rifkelsstöðum) og börn þeirra. Ekki kemur fram, að búið sé á efri hæðinni, Rifkelsstöðum Ia árið 2010.

Rifkelsstaðir Ia og IIa er hús í góðri hirðu og lítur vel út. Líkt og gengur og gerist með íbúðarhús til sveita er ekki hægt að tala um götumynd eða slíkt, en húsakostur Rifkelsstaðajarðarinnar er nokkuð viðamikill og sannarlega hægt að tala um sjónræna heild. Rifkelsstaðatorfan er til mikillar prýði í umhverfinu, húsin vel hirt og umgengni öll hin snyrtilegasta og trjáreitur fyrir henni miðri setur einnig á hana skemmtilegan, grænan svip. E.t.v. nýtur Rifkelsstaðatorfan sín best séð frá Eyjafjarðarbraut vestri, handan Eyjafjarðarár. Greinarhöfundi er ekki kunnugt um varðveislugildi Rifkelsstaða Ia og IIa, húsið er þremur árum of „ungt“ til þess að hljóta aldursfriðun, en það hefur vitaskuld eitthvert gildi, að það er meðal elstu steinsteypuhúsa sveitarfélagsins. Myndirnar af Rifkelsstöðum eru teknar 24. júlí 2026 og 15. apríl 2023 en myndin af Munkaþverárbrúnni er tekin 10. júní 2019.
Heimildir:
Ármann Dalmannsson, Eggert Davíðsson, Sveinn Jónsson. 1973. Byggðir Eyjafjarðar II. bindi Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðarsveitar.
Björn Jóhannesson. 1934. Brunavirðingar húsa í Öngulsstaðahreppi. Handskrifuð minnisbók, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri (ekki aðgengileg á vef). Hskj.Ak. H12-41.
Félagar úr Freyvangsleikhúsinu. 1998. Kristján Halldór Jónasson - minningargrein. Í Morgunblaðinu 109. tbl. 86. árg. Bls. 50.
Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon. 1993. Byggðir Eyjafjarðar 1990. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.
Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson. 2013. Byggðir Eyjafjarðar 2010. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.
Hallgrímur Hallgrímsson og Jóhann Helgason. 1925. Skýrsla um virðingar á húsum og fleiru er byggt hefur verið eftir 1917 í Öngulstaðahreppi. Í Úttektabók Öngulstaðahrepps 1893-1927. Bls. 530-548. Varðveitt á Héraðsskjalsafninu á Akureyri. HsksjAk. H12/12. Aðgengilegt á vef safnsins: https://issuu.com/heradsskjalasafnakureyri/docs/h12_12_uttektabok_1893_1927?fr=sNzUzNDQzODI5ODU
Stefán Aðalsteinsson. 2019. Eyfirðingar framan Glerár og Varðgjár. Akureyri: Sögufélag Eyfirðinga. Bernharð Haraldsson, Birgir Þórðarson, Haukur Ágústsson og Kristján Sigfússon skipuðu ritnefnd og bjuggu til prentunar.
Víga – Glúms saga. 1998. Netútgáfa af snerpa.is https://www.snerpa.is/net/isl/vigaglum.htm