Fara í efni
Menning

Grænn Akureyrarvöllur – áhrif á menningarlíf

Akureyrarvöllur um verslunarmannahelgina í fyrra. Mynd: Hilmar Friðjónsson.

„Grænn Akureyrarvöllur – viðhorf íbúa um áhrif á menningarlíf og skapandi starfsemi“ er yfirskrift könnunar sem Hulda Björg Hannesdóttir, nemandi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst, vinnur nú að í tengslum við lokaverkefni sitt þar sem hún fjallar um framtíð Akureyrarvallar og hvernig möguleg umbreyting svæðisins í grænt opið svæði gæti haft áhrif á menningarlíf og skapandi starfsemi í bænum.

Hulda Björg leitar til fólks sem býr á Akureyri eða hefur tengsl við bæinn til að fá innsýn í viðhorf fólks til framtíðar Akureyrarvallar í þessu ljósi. Eins og vera ber er könnunin nafnlaus og ekki hægt að rekja svör til einstakra þátttakenda. Hulda Björg segir það taka 2-4 mínútur að svara henni - smellið hér til að taka þátt í könnuninni.

Hulda Björg fékk hugmyndina að lokaverkefninu á tónleikum um verslunarmannahelgina í fyrrasumar. Mynd: Hilmar Friðjónsson.

Hulda Björg vinnur að verkefninu með blandaðri rannsóknaraðferð, tekur viðtöl og gerir áðurnefnda netkönnun meðal íbúa og reglulegra gesta í bænum. „Á Íslandi hefur lítið verið rannsakað hvernig opin og græn svæði í minni bæjarfélögum nýtast sem vettvangur fyrir skapandi starfsemi og menningarlíf,“ segir Hulda Björg, spurð út í rannsóknina.

Tónleikar á Akureyrarvelli urðu kveikjan að verkefninu. „Hugmyndin að verkefninu kviknaði í kjölfar tónleika á svæðinu sumarið 2025 sem sýndu möguleika þess sem opins og skapandi rýmis. Hönnunarsamkeppni um framtíð svæðisins hefur verið sett af stað, sem gerir rannsóknina tímabæra,“ segir Hulda Björg. Niðurstöður rannsóknarinnar verða nýttar í lokaritgerð og er það mat hennar að þær geti nýst í umræðu um þróun svæðisins.