Fara í efni
Menning

Fjögur leigubílastæði syðst við Skipagötu?

Bíl er þarna lagt í syðsta stæðið sem um ræðir við Skipagötu. Þrjú stæði fyrir aftan hann verða einnig tekin frá fyrir leigubíla, ef hugmyndin verður að veruleika. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Á fundi skipulagsráðs Akureyrarbæjar í síðustu viku var lögð fram tillaga að útfærslu leigubílastæða í Skipagötu. Í hugmyndinni felst að tiltekin stæði við götuna verði gerð að sérstökum stæðum fyrir leigubíla. Skipulagsráð samþykkti að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við götuna.

Eins og fram hefur komið hefur leigubílastöðin BSO fengið frest til 1. maí næstkomandi til að fjarlægja hús stöðvarinnar við Hofsbót en þar hefur starfsemi stöðvarinnar verið um áratugaskeið. Ef tillaga skipulagsráðs nær fram að ganga yrði væntanlega hægt að ganga að lausum leigubílum vísum syðst í Skipagötu. Samkvæmt tillögunni yrði sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða, sem nú er framan við Skipagötu 16, fært aðeins norðar og yrði framan við Íslandsbanka.

Leigubílstjórar sáttir við staðsetninguna

Tillagan gerir ráð fyrir að fjögur syðstu bílastæðin við Skipagötu verði afmörkuð og skilgreind sem biðsvæði fyrir leigubíla. Samþykkt var að tillagan verði kynnt fyrir lóðarhöfum Skipagötu 10-18, auk Kaupvangsstrætis 4 sem stendur á horninu við Skipagötu.

Tillöguuppdráttur Akureyrarbæjar sem gerir ráð fyrir að fjögur syðstu bílastæðin við Skipagötu (innan rauða kassans) verði gerð að biðsvæði leigubíla.

Smári Ólafsson, leigubílstjóri og stjórnarformaður BSO, segir í samtali við akureyri.net að bílstjórum stöðvarinnar lítist ágætlega á þessa tillögu. „Það hafa verið samtöl við okkur um staðsetningu hér og þar og þetta var niðurstaðan,“ segir Smári og bætir við það sé auðvitað erfitt að finna pláss í miðbænum fyrir einhvern fjölda af bílum en þessi staðsetning sé ágæt. Þarna í grennd séu til dæmis ýmsir skemmtistaðir og barir en tekur fram að þessi stæði séu ekki bara hugsuð fyrir gangandi vegfarendur á kvöldin og nóttunni að ná sér í bíl. „Við verðum þarna á daginn líka og til dæmis eru hótel þarna nálægt og þetta gæti nýst vel á sumrin líka, því það eru margir ferðamenn sem eiga leið þarna um,“ segir Smári.

Bílastæðin fjögur sem hugmyndin er að tekin verði frá og skilgreind sem biðsvæði fyrir leigubíla. Mynd: Skapti Hallgrímsson