Menning
Tilboð í byggingarrétt frá 309 til 902 milljóna
16.03.2026 kl. 08:45
Lóðirnar þrjár á Tjaldsvæðisreitnum sem boðnar voru út. Mynd: akureyri.is.
Fimm tilboð bárust byggingarrétt þriggja lóða á Tjaldsvæðisreitnum svokallaða, það lægsta um 309 milljónir króna frá SS Byggi ehf. á Akureyri en hæsta tilboðið var 902 milljónir, frá JSP320 ehf. í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir að ellefu fjölbýlishús verði reist á þessum lóðum. Í útboðsskilmálum Akureyrarbæjar var tilgreint lágmarksverð upp á ríflega 295 milljónir króna, auk gatnagerðargjalda og annarra lögbundinna gjalda.
Tilboðin sem bárust og tilboðsfjárhæðir:
| JSP320 ehf. | 902.000.000 kr. |
| Klettás ehf. | 657.000.000 kr. |
| GG verk ehf. | 583.238.000 kr. |
| Landsbyggð þróun ehf. | 351.000.001 kr. |
| SS Byggir ehf. | 308.844.402 kr. |
- Frétt akureyri.net um útboðið á lóðunum á Tjaldsvæðisreitnum: Bjóða út byggingarrétt á Tjaldsvæðisreit