Fara í efni
Menning

Klettás: 657 milljónir fyrir Tjaldsvæðisreit

Mynd: Þorgeir Baldursson

Meirihluti skipulagsráðs Akureyrar samþykkti í gær að taka tilboði Klettáss ehf. í byggingarrétt þriggja lóða á Tjaldsvæðisreit, sem svo er kallaður, með fyrirvara um að tilskildum gögnum verði skilað inn. Tilboð Klettáss var 657 milljónir króna en hæstjóðandi, JSP320, dró tilboð sitt upp á 902 milljónir króna til baka.

  • Klettás, sem er í eigu Akureyringsins Péturs Bjarnasonar og fjölskyldu hans, er eigandi fjölda fasteigna á Akureyri og höfuðborgarsvæðinu. Klettás á meðal annars verslunarkjarnann Norðurtorg á Akureyri.
  • Eignir Klettáss á Akureyri
  • Eignir Klettáss á höfuðborgarsvæðinu
  • Reiturinn, þar sem tjaldsvæði bæjarins var um langt árabil, markast af Þórunnarstræti í austri, Hrafnagilsstræti í suðri, Byggðavegi í vestri og lóð Berjaya hótelsins við Þingvallastræti í norðri.
  • Samkvæmt drögum að deiliskipulagi svæðisins er gert ráð fyrir 156-176 íbúðum í 11 fjölbýlishúsum á lóðunum þremur, auk bílakjallara

„Deiliskipulagsvinnu fyrir Tjaldsvæðisreitinn er ekki að fullu lokið og samkvæmt úthlutunar- og útboðsskilmálum fyrir reitinn er gert ráð fyrir að lokaferli deiliskipulagsins verði unnið í samvinnu við þann aðila sem fær lóðina,“ sagði í frétt akureyri.net þegar byggingarrétturinn var auglýstur til sölu í janúar á þessu ári. „Með því að leyfa lóðarhafanum að fá tækifæri til að hafa áhrif á útfærslu skipulagsins er verið að reyna að koma í veg fyrir að gera þurfi breytingar á skipulaginu eftir að það hefur tekið gildi.“

Ekki voru allir fundarmenn í skipulagsráði sammála því að ljúka málinu í gær. Jón Hjaltason óflokksbundinn greiddi atkvæði á móti því að taka tilboði Klettáss og lék bóka eftirfarandi:

Ég tel heilladrýgst og nauðsynlegt að endurskoða skipulagshugmyndir um tjaldsvæðisreitinn. Viðurkennum að þar höfum við villst af vegi. Hefjum verkið að nýju með það markmið að gera tjaldsvæðið að óskareit barnafjölskyldna, bæði hvað varðar húsagerð og allt umhverfi.

Sindri S. Kristjánsson Samfylkingu, áheyrnarfulltrúi í skipulagsráði, lét bók eftirfarandi:

Ég tel að fresta ætti afgreiðslu málsins um sinn og gaumgæfa hvort úthlutunarskilmálarnir sem lágu útboðinu til grundvallar styðji við þá þörf sem fyrir liggur á íbúðamarkaði á Akureyri, bæði um þessar mundir og til framtíðar.

Fimm tilboð bárust í byggingarréttinn, en hæstbjóðandi féll frá tilboðinu sem fyrr segir:

  • JSP320 ehf. – 902 milljónir
  • Klettás ehf. – 657 milljónir
  • GG verk ehf. – 583 milljónir
  • Landsbyggð þróun ehf. – 351 milljón
  • SS Byggir ehf – 309 miljónir

Lóðirnar þrjár á Tjaldsvæðisreitnum sem boðnar voru út. Mynd: akureyri.is.