Fara í efni
Menning

Eyþór Ingi tekur við stjórn karlakórsins

Eyþór Ingi Jónsson tónlistarmaður og náttúruljósmyndari.

Eyþór Ingi Jónsson hefur verið ráðinn stjórnandi Karlakórs Akureyrar - Geysis (KAG) og tekur til starfa í haust. Þetta staðfesti Svavar Alfreð Jónsson, formaður stjórnar KAG, við akureyri.net.

Eyþór Inga þarf vart að kynna en hann hefur um árabil starfað sem organisti við Akureyrarkirkju og við kórstjórn, meðal annars með kammerkórnum Hymdodiu, og sinnt margvíslegum tónlistarverkefnum.

Valmar Väljaots hefur stjórnað kórnum undanfarin ár en eins og akureyri.net sagði frá í morgun er Valmar að flytja búferlum til Sauðárkróks á næstunni. Síðustu tónleikar hans með KAG verða vortónleikar kórsins í Akureyrarkirkju laugardaginn 9. maí næstkomandi. 

  • Frétt akureyri.net fyrr í dag:

Valmar flytur – ráðinn kennari á Króknum


Akureyri.net birti ítarlegt viðtal Rakelar Hinriksdóttur við Eyþór Inga Jónsson fyrr á árinu, í þremur hlutum: