Fara í efni
Menning

Best að vita ekkert áður en lestur hefst

AF BÓKUM – 65

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir_ _ _

Ég hef lært að þegar Reynir samstarfsfélagi minn bendir mér á bók, þá er það undantekningarlaust góð bók! Það á svo sannarlega við um bókina Project Hail Mary eftir Andy Weir sem hann benti mér á fyrir rúmlega ári en ég lét loksins verða af því að lesa hana núna í janúar. Þetta er án efa ein besta bók sem ég hef nokkurn tímann lesið.

Þetta er svona bók þar sem best er að lesandinn viti sem minnst um söguþráðinn áður en lestur hefst, og með það í huga verða þessi bókameðmæli ákaflega loðin og óljós til þess að forðast allar höskuldarviðvaranir. Sjálf vissi ég ekkert um bókina þegar ég byrjaði annað en að hún fjallaði um mann sem væri einn í geimnum.

Sagan hefst á því að aðalpersónan, karlmaður um fertugt, vaknar algjörlega minnislaus á ókunnugum stað. Hann kemst fljótt að því að hann er um borð í geimskipi og smátt og smátt komast bæði hann og lesandinn að því hver hann er og hvers vegna hann er einn í þessu geimskipi.

Hér lýkur lýsingu á söguþræðinum, en það sem ég sagt ykkur er það að ég bæði hló og grét, enda er sagan með eindæmum falleg og uppfull af húmor og einlægni. Aðalpersónan er svo mannleg og auðvelt að tengja við tilfinningar hans í þessum aðstæðum. Bókin vekur mann líka til umhugsunar um það að mannkynið er ein heild og að við erum bara lítill depill í hinum stóra alheimi.

Kvikmynd gerð eftir bókinni væntanleg í mars með Ryan Gosling í aðalhlutverki. Ég ætla að sjálfsögðu að sjá hana og hvet ykkur til þess að gera slíkt hið sama en mæli þó með að lesa bókina fyrst. Enn fremur bið ég ykkur að forðast allar stiklur (e. trailer) úr myndinni þar sem þær eru uppfullar af höskuldum án viðvarana! Project Hail Mary er best að njóta án nokkurrar vitneskju um það sem í vændum er.

Andy Weir hefur skrifað fleiri skáldsögur sem tengjast geimferðum, þeirra þekktust er the Martian sem einnig hefur verið kvimynduð – og er að sjálfsögðu á listanum yfir bækur sem ég ætla að lesa.