Menning
Ævar nær ótrúlega vel til barna – og fullorðinna
24.02.2026 kl. 06:00
AF BÓKUM – 67
Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
Í dag skrifar Eydís Stefanía Kristjánsdóttir_ _ _
Skólastjórinn er barnabók eftir Ævar Þór sem fékk íslensku bókmenntaverðlaunin í ár.
Ævar er stórkostlegur höfundur sem nær svo ótrúlega vel til barna með stórskemmtilegum bókum sínum. Ímyndunarafli hans virðast enginn takmörk sett eins og sést vel í þessari bók. En bókin er byggð á sannri sögu.
Salvar er 12 ára strákur sem er orðinn hundleiður á því að vera í skóla. Kennararnir eru allir ómögulegir með alltof erfið próf. Þegar Salvar kemst að því að Stefán skólastjóri er að fara að hætta fær hann frábæra hugmynd. Hann ætlar að sækja um skólastjórastöðuna. Hversu erfitt getur það verið að vera skólastjóri? Salvar ætlar sko að breyta öllum reglum skólans og gera skólann skemmtilegan. Salvar falsar nokkur háskólapróf á netinu, sækir um stöðuna og er alveg óvart ráðinn sem nýi skólastjórinn.
Salvar fær vinkonu sína með sér í lið og þau fara strax í það að búa til lista yfir það sem má betur fara í skólanum. Listinn er langur: bekkjargrís, blundtími eftir mat, það má sofa í tímum og labba um, en Salvar er skynsamur og ákveður að velja bara eitt atriði á listanum, til að byrja með. Það er því hans fyrsta verk sem skólastjóri að skipa matráðnum að hafa alltaf pizzu og gos í hádegismatinn og candy floss í eftirrétt, líka fyrir yngstu krakkana. Það endaði ekkert alltof vel.
Fyrstu dagarnir sem skólastjóri byrja vel. Salvar er hylltur eins og hetja, allir gefa honum fimmu og fagna honum þegar hann mætir. Hann fær sína eigin skrifstofu og er aðal maðurinn. Málin flækjast hins vegar aðeins þegar Salvar áttar sig á því að hann er ekki bara skólastjóri, hann er líka nemandi. Hann þarf því að mæta í tíma og sinna náminu samhliða því að vera skólastjórinn. Þegar það bætast svo á hann foreldra viðtöl, eineltismál og allskonar skipulagsmál sem hann ræður ekkert við er Salvar ekkert svo viss um að þetta hafi verið svo góð hugmynd. Kennararnir snúast allir gegn honum og vilja að hann segi af sér. Salvar fer í mótþróa og setur allar reglurnar af listanum góða fram sem verður til þess að allir kennarar skólans taka sig saman og hafa öll lokapróf í sömu vikunni sem gilda 95% af heildar einkunn. Þá fær Salvar alveg nóg, hversu mörg próf er hægt að hafa á einni viku? Hann veit að ef hann hættir sem skólastjóri þá munu prófin hverfa. Það sem fyllir mælirinn er unglinga partý sem unglingarnir halda á skólalóðinni eitt kvöldið. Partýið fer algjörlega úr böndunum og þá ákveður Salvar að það sé líklega best að einhver annar taki við skólastjórastöðunni og að hann einbeiti sér að náminu.
Stórskemmtileg bók fyrir börn á öllum aldri og líka fyrir fullorðna! Þessi bók hefur verið mjög vinsæl síðustu mánuði og er nánast aldrei inni á bókasafninu. Það er svo gleðilegt þegar það koma út góðar bækur sem höfða vel til krakka á breiðum aldri sem þau hafa virkilegan áhuga á að lesa.
Ég segi bara áfram Ævar og áfram barna- og unglinga bókahöfundar. Haldið áfram að gefa úr góðar bækur fyrir börn og unglinga.