Fara í efni
Menning

Aðskilnaðarstefnan og glæpur við fæðingu

AF BÓKUM – 80

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Dagný Davíðsdóttir_ _ _

Glæpur við fæðingu eftir Trevor Noah kom út fyrir tíu árum síðan og ég hafði lengi ætlað mér að lesa hana — nú skil ég loksins af hverju hún hefur verið svona vinsæl. Trevor Noah er suður-afrískur grínisti, þáttastjórnandi og rithöfundur, en í þessari bók segir hann frá eigin uppvexti í Suður-Afríku á tíma aðskilnaðarstefnunnar. Þegar hann fæðist er í raun ólöglegt fyrir dökka og ljósa manneskju að vera saman svo tilvist hans er glæpur við fæðingu.

Bókin er bæði fyndin, áhrifamikil og ótrúlega einlæg. Hann segir frá allskonar mis erfiðum augnablikum í lífi sínu með húmor og hlýju, jafnvel þegar efnið er þungt eða sárt. Það sem stendur mest upp úr er hvernig hann nær að blanda saman alvarlegum málefnum og skemmtilegri frásögn þannig að maður bæði hlær og hugsar. Sérstaklega fannst mér áhugavert að lesa um sambandið við móður hans og hvernig hún mótaði hann sem manneskju. Hún er alveg hreint ótrúleg kona.

Bókin er merkt 921 Noa á Amtsbókasafninu.