Fara í efni
Mannlíf

Við fengum fáránlega góðan stuðning

Hans Viktor Guðmundsson í baráttu um boltann við Ágúst Eðvald Hlynsson. Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Ég held að orkan í okkur og viljinn til að vinna hafi gert gæfumuninn fyrir okkur í kvöld og svo komu gæðin inn í þetta þegar leið á leikinn,“ sagði Hans Viktor Guðmundsson fyrirliði KA við akureyri.net eftir að lið hans lagði Þór að velli, 3-0, í fallslag liðanna í Bestu deildinni í fótbolta á nýja KA-vellinum í kvöld.

„Það var mjög gott að ná að klára þetta því taugaspennan var mikil, það er alltaf allt undir þegar þessi lið mætast, hvað þá núna, og maður var alveg búinn að undirbúa sig fyrir það. Við gátum alveg reiknað með slíkum leik og að það yrði ekkert endilega einhver rosalega fallegur fótbolti spilaður.

En við sköpuðum okkur nokkur ágæt færi í fyrri hálfleik þar sem markmaðurinn þeirra varði vel og skoruðum svo þrjú mörk í þeim seinni þannig að maður getur ekki verið annað en mjög sáttur með hvernig þetta þróaðist.

Fyrsta markið skipti öllu máli, þegar bæði liðin eru í brasi er erfitt að rífa sig upp þegar þú færð á þig mark og þess vegna var þetta mark ótrúlega mikilvægt.“

Dýrmætt að fá sigurtilfinninguna

Þið farið í landsleikjahléð með þennan sigur og eruð komir úr fallsætinu. Verður það ekki gríðarlegur léttir fyrir ykkur?

„Já, það munar öllu. Það er svo stór munur á því að vera í tíunda sætinu núna, frekar en ellefta eða tólfta, og mikill léttir. Það er svo dýrmætt að fá sigurtilfinninguna og hún gefur okkur mikið inn í leikina sem við eigum framundan í október.“

Stemningin var mikil hjá tæplega tvö þúsund áhorfendum á KA-vellinum í kvöld og Hans sagði að það væri meiri háttar upplifun að spila við svona aðstæður.

„Já, þetta var algjör snilld, gjörsamlega geðveikt. Við fengum fáránlega góðan stuðning, það heyrðist svo vel í áhorfendum allan tímann og það er ekki hægt að biðja um meira.“

Njótum þess að hafa Eið hérna

Hvernig var svo að fá Eið Smára inn í þjálfarateymið hjá ykkur fyrir þennan lokasprett á Íslandsmótinu?

„Hann er náttúrulega bara goðsögn í fótboltanum og það stíga allir upp á tærnar við það að fá hann í hópinn. Hann setur kröfur á menn og er ótrúlega góður þjálfari, kemur að sjálfsögðu með frábæra punkta til okkar því hann kann þetta allt saman. Við njótum þess að hafa hann hérna og hlusta á hann,“ sagði Hans Viktor Guðmundsson.