Fara í efni
Mannlíf

Fann eftir korter að hungrið var til staðar

Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Ég hafði alltaf hugsað mér að fara aftur í þjálfun á einhverjum tímapunkti. Svo kom þetta tækifæri upp hjá KA og mér fannst það spennandi – hvað félagið varðar, hvað leikmannahópinn varðar, stöðuna sem liðið er í og þetta verkefni, og ég var til í þetta,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen, annar þjálfara KA og einn albesti knattspyrnumaður Íslandssögunnar, þegar akureyri.net hitti hann í KA-heimilinu í gær og ræddi við hann um leikinn gegn Þór í kvöld og þá ákvörðun hans að snúa aftur í þjálfun eftir nokkurt hlé.

KA-menn búa sig undir sannkallaðan stórleik í kvöld þegar þeir taka á móti Þór í þriðja Akureyrarslag liðanna í Bestu deildinni klukkan 19.30 á nýja KA-vellinum. Þetta er hreinræktaður fallslagur en Þór er með 21 stig, KA 20 og ÍBV 18 stig í þremur neðstu sætunum og flest bendir til þess að tvö þessara liða þurfi að bíta í það súra epli að falla úr deildinni.

Eiður tók til starfa hjá KA 19. ágúst, þegar nítján umferðum var lokið í deildinni og liðið sat í ellefta og næstneðsta sæti Bestu deildarinnar. Hann var ráðinn þjálfari liðsins við hlið Hallgríms Jónassonar sem hefur stýrt KA-liðinu frá haustinu 2022 en Eiður hafði áður þjálfað lið FH fyrir fjórum árum. Hann sagði að aðdragandinn að Akureyrarævintýrinu hefði ekki verið langur.

Eiður Smári gefur Guðjóni Erni Hrafnkelssyni góð ráð í fyrsta leik KA eftir að hann kom til starfa; gegn KR á heimavelli. Hallgrímur Jónasson ræðir við fjórða dómarann. Mynd: Ármann Hinrik

Hef ekki séð eftir því í eina sekúndu

„Nei, hann var það ekki en þetta var svona fram og til baka, eins og alltaf þegar maður þarf að hugsa hlutina. Þá hugsaði ég með mér: Þetta var það sem þú óskaðir þér, að fara aftur í þjálfun á einhverjum tímapunkti, og mér fannst þetta því kjörið tækifæri til að finna hvort ég hefði hungrið í þetta. Það tók svona korter á fyrstu æfingunni, bara með því að hitta strákana, hitta liðið og fólkið hérna. Þá fann ég að hungrið var til staðar. Ég stökk því á þetta tækifæri og hef ekki séð eftir því í eina sekúndu.“

Verkefnið hjá KA er krefjandi, liðið er ekki í góðri stöðu og það hafði verið búist við miklu meira af því á þessu tímabili. Hvernig hefur verið að fást við þetta?

Mér hefur fundist vera mikil stígandi hjá okkur, bæði á æfingasvæðinu og í þessum fjórum leikjum eftir að ég kom. Það var reyndar lítið að marka fyrsta leikinn sem var á móti KR tveimur dögum eftir að ég kom (5-3 fyrir KR), og KR er bara mjög sérstakt lið að spila við í þessari deild.

Svo kemur Fram-leikurinn sem var mjög flottur hjá okkur (2-2 jafntefli í Úlfarsárdal), Blikaleikurinn var jafnvel enn betri (2-1 sigur á Akureyri), og svo fengum við skell, hvað úrslit varðar, gegn FH í Kaplakrika (3-0) en mér fannst þau úrslit ekki vera í neinu samræmi við leikinn. Það má því ekki ofhugsa eða gera of mikið úr þeim úrslitum því þó þau líti illa út á pappírunum þá vorum við þjálfararnir ekki svo ósáttir með leik liðsins.

Eiður Smári og Hallgrímur Jónasson á æfingu daginn eftir að Eiður var ráðinn til KA. „Við Haddi erum í þessu saman, og fyrir mér var það stórt atriði að Haddi yrði áfram í þjálfarateyminu.“ Mynd: Skapti Hallgrímsson

Stórt atriði að Haddi yrði áfram

Eiður vildi taka skýrt fram að hann væri ekki einn í þessu starfi.

Við Haddi (Hallgrímur Jónasson) erum í þessu saman, og fyrir mér var það stórt atriði að Haddi yrði áfram í þjálfarateyminu. Ég þurfti upplýsingar um leikmennina, ekki bara hlaupatölur, heldur að kynnast karakterunum, hvernig einstaklingar þetta væru, hvernig sumir utanaðkomandi væru búnir að hafa það hér á Akureyri og fleira slíkt. Meiðslasagan er mikil hérna á þessu ári og mikil áföll fyrir liðið hvað það varðar, og ég þurfti að komast vel inn í öll þessi mál.

Fyrir vikið hafa ungir og ferskir menn þurft að stíga upp og taka að sér mun stærri hlutverk en búist var við fyrir tímabilið. En það gerir líka að verkum að þeir verða alltaf betri og betri og við erum alla vega að fara inn í þennan leik með mikla samkeppni um stöður í byrjunarliðinu. Sem er bara skemmtilegur höfuðverkur og við reynum að finna réttu blönduna.

Þarf ekki að vera titlaður eitthvað sérstakt

„Við Haddi erum jafningjar í þessu starfi. Ég tók það skýrt fram þegar ég átti spjall við KA-menn að ég þyrfti ekki að vera titlaður eitthvað sérstakt. Ég er bara í þjálfarateyminu, ég kem með mitt og er með mjög sterka rödd. Svo tölum við saman, oft allir þrír með markvarðaþjálfaranum, ræðum hverjar pælingarnar séu hjá hinum og reynum að finna réttu blönduna. Það hefur bara gengið nokkuð vel.“

Stemningin á nýja Greifavellinum var góð þegar Akureyrarliðin gerðu markalaust jafntefli í lok júlí. Það var fyrsti leikur á vellinum. Mynd: Ármann Hinrik

Þið þekktust áður og spiluðuð einhverja landsleiki saman, ekki satt?

„Já, við erum líka örugglega skyldir þar sem við erum báðir Húsvíkingar! Og við spiluðum saman í landsliðinu þannig að ég þekkti til Hadda og vissi hvaða mann hann hefði að geyma. Ég vissi hver hans metnaður væri og hvað hann er búinn að leggja í þetta starf hjá KA. Þar er ég að tala um alla grunnvinnuna sem fólk sér ekki úti á æfingasvæðinu.“ 

„Sko, ég sagði þér þetta“

En ég sá það samt strax á fyrstu æfingu á æfingasvæðinu og hvernig liðið og æfingar hafa verið sett upp, hvernig undirbúningur hefur verið inni á skrifstofu. Við erum ekki með ólíkar skoðanir á fótboltanum en stundum erum við ósammála og þá finnum við bara lausn á því.

Ég held að það góða við okkar samvinnu sé að það er engin svona týpa: „Sko, ég sagði þér þetta.“ Enginn þessi gaur sem segir. „Ég var búinn að segja þetta!“ Við tökum saman ákvörðun, stöndum við hana og keyrum á þetta saman.

Svo þegar komið er út í leikinn þá er þetta bara fótbolti. Þú býrð til einhvern ramma sem þú sýnir leikmönnum og segir að þú ætlir að reyna að setja hlutina svona upp. Síðan byrjar leikurinn og hann tekur oft völdin sjálfur. Þá er spurning hvernig og hversu mikið náum við að grípa inn í af hliðarlínunni, þá helst í hálfleik og svo framvegis.

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Kári er klár en langt í Oliver og Samuel

Eiður sagði að lið KA yrði svipað í leiknum gegn Þór og það var gegn FH í Kaplakrika um síðustu helgi.

Það verða litlar breytingar frá FH-leiknum. Kári Gautason er klár, sem er frábært. Samuel Kroon er áfram frá og miðað við meiðslin sem hann lenti í búumst við ekki við miklu af honum það sem eftir er tímabilsins, því miður. Oliver Heiðarsson er ekki tilbúinn, ég yrði mjög hissa og það yrði algjör bónus fyrir okkur ef hann gæti tekið einhvern þátt í allra síðustu leikjunum.

Það verður engin áhætta tekin með leikmenn, alveg sama hvaða stöðu við erum í. Ef við fáum Oliver inn á æfingasvæðið, þá yrði það gott fyrir okkur og gott fyrir hann eftir erfið meiðsli. Við getum ekki treyst á að geta gefið honum og Samuel stór hlutverk.

Það er aðeins meiri pressa á okkur

Nú blasir við þessi stóri og mikilvægi leikur gegn Þór. Hversu vel ertu kominn inn í ríginn milli félaganna hérna á Akureyri?

Maður kynnist honum óhjákvæmilega, bara með því að vera hérna á KA-svæðinu og hérna í húsinu! Ég sé aðeins eftir því að hafa ekki mætt á handboltaleikinn milli liðanna hérna í vikunni til að upplifa stemninguna, en ég var bara að horfa á fótbolta í staðinn, eins og ég geri svo oft!

En ég finn alveg að þetta er ekki bara einhver leikur, það er ansi langt frá því. Auk þess sem þessi leikur milli liðanna skiptir öllu máli og ég get alveg viðurkennt að miðað við stöðuna í deildinni er aðeins meiri pressa á okkur en þeim fyrir leikinn. Það er meiri pressa á okkur að vinna leikinn.

Daninn André Rømer í leiknum gegn Þór á nýja Greifavellinum í lok júlí. André, sem gekk til liðs við KA um miðjan þann mánuð, er yngri bróðir Marcel sem lék með KA hluta síðustu leiktíðar. Mynd: Ármann Hinrik

Verðum einfaldlega að vinna

Alveg sama hvað gerist, það verður enn nóg eftir af stigum í boði í síðustu leikjunum. En það má ekki halda að þetta reddist bara og það sé hægt að seinka því um viku og viku að ná í stigin sem þarf. Ég hugsa að Þórsarar yrðu sáttari við jafntefli í leiknum en við.

Svo getum við farið að reikna: Hvar fáum við stig og hvar tapa aðrir stigum og farið í allan þann pakka, en þá liggur maður örugglega andvaka og fær alltaf út sömu lausnina – sem er einfaldlega sú að við verðum að vinna okkar leiki. Þetta snýst bara um það!

Leikur þar sem gildin verða enn sterkari

Eftir þennan leik kemur langt landsleikjahlé og svo bíða KA-manna erfiðir útileikir gegn Stjörnunni og Val áður en þeir mæta ÍBV á Akureyri í lokaumferðinni 24. október. Þeir myndu lenda fjórum stigum á eftir Þór með tapi í kvöld og yrðu þá vægast sagt í slæmum málum. Eiður tók vel undir þau orð að það væri eins gott fyrir KA-liðið að fá eitthvað út úr leiknum í kvöld, og hann kvaðst vera mjög bjartsýnn fyrir hönd sinna manna.

Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Ef við spilum bara einhvers staðar í námunda við okkar getu og jöfnum andstæðinginn í vinnusemi og grunnatriðum, þá er ég bara mjög bjartsýnn. Þetta er ábyggilega leikur þar sem þessi gildi verða enn sterkari en áður, og það verður mikilvægt að nýta sér spennustigið og grunnatriðin. Það kemur alltaf smá adrenalín og spenna fyrir svona leiki – maður þarf að nýta sér adrenalínið sem orku því það er auðvelt að fara í öfuga átt. Ef spennustigið er of hátt gera menn oft mistök. Þannig að það eru margs konar svona atriði sem spila meira inn í þessum leik en í hefðbundnum leik á móti öðrum andstæðingi. Það er meira undir hér.“

Hugsa bara um þetta verkefni í fimm vikur

Þú sagðist hafa verið um það bil 15 mínútur að finna að þú hefðir hungrið í þetta. Þú ert ráðinn út þetta tímabil en ertu að horfa lengra, ertu að hugsa um það núna að einbeita þér af fullum krafti að þjálfun aftur?

„Já, það er vel inni í myndinni. En það er meira svona persónulegt frekar en að horfa á hvar ég myndi vilja þjálfa og hvert ég myndi vilja stefna. Akkúrat á þessum tímapunkti, fram til 24. október, að kvöldi til, eftir síðasta leik, er bara ekkert annað sem kemst að en þetta verkefni. Og það væri óþarfa orka að fara að velta fyrir sér hvað kemur næst. Það er nægur tími til stefnu til að taka ákvarðanir um næstu skref. Fyrir félögin, fyrir okkur þjálfarana, um leikmannamál og annað. Núna er þetta bara innrammað, þessar fimm vikur sem eru eftir af þessu tímabili, og öll orka og allar hugsanir fara í verkefnið hérna hjá KA.“ 

Mynd: Ármann Hinrik 

Væri asnalegt að vera ekki á staðnum

Eiður hefur verið á Akureyri nánast samfleytt síðan hann var ráðinn til félagsins og sagði að það hefði aldrei komið til greina að vera á einhverju flakki á milli landshluta.

Fyrsta vikan var erfið því ég var búinn að lofa mér í sjónvarpið hjá Sýn, var búinn að taka það að mér þannig að það raskaðist aðeins. En það var fullur skilningur á því hjá báðum aðilum. En svo er ég bara hérna á Akureyri. Það væri asnalegt að taka að sér þjálfun hérna og vera ekki á staðnum. Þetta er ekki fjarþjálfun. Eftir leikinn í Kaplakrika varð ég eftir í bænum en var svo mættur aftur norður fyrir æfingu daginn eftir. Hérna er gott að vera.

Það gefur mér líka mikinn tíma til að spá í hlutina, fótboltapælingar þjálfarans hætta aldrei þó hann yfirgefi æfingasvæðið. Þær eru alltaf í gangi og geta haldið vöku fyrir manni – en geta líka hjálpað manni að finna ró. Þetta er bara þessi tilfinningaskali sem fótboltinn býður upp á.

Vissulega finnur maður að það er pressa hérna hjá KA, við erum ekki í þeirri stöðu sem við vildum vera í, en hérna róa allir í sömu átt, það eru allir fullir tilhlökkunar fyrir þessu verkefni, frekar en stressaðir yfir stöðunni,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen.