Fara í efni
Mannlíf

Gæti orðið virkilega skemmtilegt kvöld

Halldór Áskelsson um borð í Ásu EA, skemmtibáti sínum í Sandgerðisbót í gær. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Halldór Áskelsson var lykilmaður í Þórsliðinu þegar það náði sínum besta árangri í sögunni í fótboltanum, þriðja sæti efstu deildar bæði 1983 og 1992. Hann fagnaði innilega í fyrrakvöld þegar Þór lagði KA í úrvalsdeildinni í handbolta og vonast eftir því að geta líka fagnað annað kvöld í stæðunum fyrir aftan syðra markið á KA-vellinum þegar Þórsarar mæta þangað í lykilleik fallbaráttunnar í Bestu deildinni í fótbolta.

Halldór, sem er næstmarkahæstur og fjórði leikjahæstur í sögu Þórs í efstu deild, var þó ekki í KA-heimilinu þegar Þór vann þar frækinn sigur á KA í baráttuleik, 35-31, þann fyrsta í efstu deild frá árinu 2002.

Frábær sigur sem gladdi mig mjög

„Ég horfði á leikinn að hluta til í gegnum símann og fylgdist með umtalinu fyrir leik. Ég fór ekki í KA-heimilið og sé svolítið eftir því í dag, en ég fagnaði vel þegar flautað var til leiksloka. Þetta var hnífjafn leikur, mínir menn byrjuðu illa en komu svo gríðarlega sterkir til baka. KA komst aftur yfir – en í lokin var þetta frábær sigur sem gladdi mig mjög,“ sagði Halldór þegar akureyri.net heimsótti hann í Ljómatúnið í Naustahverfi í gær.

Halldór Áskelsson skorar fimmta mark sitt gegn FH í lokaumferð efstu deildar Íslandsmótsins í september 1985. Dýri Guðmundsson reynir að komast fyrir skotið, Magnús Pálsson er fyrir miðri mynd og Viðar Halldórsson fjær. Markvörðurinn er Úlfar Daníelsson.

Halldór tók undir þær vangaveltur að væntanlega hefði það aldrei gerst áður að svona stutt væri á milli stórleikja milli KA og Þórs í handbolta og fótbolta en botnslagur liðanna í Bestu deildinni fer fram á nýja KA-vellinum annað kvöld, laugardagskvöld, og hefst klukkan 19.30.

Tengist inn í KA-fjölskyldu

Þessi sigur í handboltanum, gefur hann ekki þínum mönnum eitthvað fyrir fótboltaleik liðanna?

„Já, ég hugsa að hann geti gert það, þó það sé ekki beint hægt að setja einhverja línu þarna á milli. En þetta verður „búst“ inn í andrúmsloftið hjá íþróttafélaginu Þór, að minnsta kosti, og kannski hræra þessi úrslit líka upp í hinu liðinu,“ sagði Halldór sem er að sjálfsögðu gallharður Þórsari en líka með tengingu inn í KA.

„Ég tengist inn í KA-fjölskyldu því bróðursynir konunnar minnar eru báðir í KA. Dagur Gautason spilaði með KA gegn Þór í handboltanum á miðvikudagskvöldið og Kári Gautason gæti spilað með KA gegn Þór í fótboltanum á laugardagskvöldið. Þetta eru guttar sem maður hefur þekkt lengi. Afi þeirra, Einar Helgason, var markvörður ÍBA í fótboltanum í gamla daga og einnig þjálfari ÍBA og Keflavíkur þannig að það eru alls konar tengsl í þessu hérna í bænum.“ 

Bestur og efnilegastur! Valsarinn Guðmundur Þorbjörnsson og Þórsarinn Halldór Áskelsson, sem leikmenn efstu deildar Íslandsmótsins kusu þann besta og efnilegasta sumarið 1985.

Sjáum Akureyrarvöll í hillingum

Mætir þú á KA-völlinn á laugardagskvöld?

Já, ég er klár í það, ég hef mætt á alla Þórsleikina hérna á Akureyri í ár og var á hinum heimaleiknum hjá KA í sumar þar sem ég stóð á pöllunum fyrir aftan annað markið ásamt öðrum Þórsurum. Þetta er stórglæsilegur völlur og mannvirki hjá KA og þarna var dúndrandi stemning, eins og verður örugglega líka að vanda meðal Þórsaranna í þessum leik.

Þessir leikir milli Þórs og KA á sínum heimavöllum gefa fótboltanum mikla vigt og þetta er öðruvísi stemning en var í gamla daga þegar allir leikir voru spilaðir á Akureyrarvelli, vellinum sem við þessir gömlu sjáum alltaf í hillingum og fannst afar erfitt að kveðja.

Stemningin á Akureyrarvelli var öðruvísi, þangað mætti líka hellingur af fólki en þá voru ekki þessir föstu stuðningsmannahópar liðanna eins áberandi og þeir eru núna, Mjölnismenn og Vinir Sagga, eða hvað þetta heitir. En þar voru þó hópar sem voru duglegir að hvetja liðin, til dæmis konurnar okkar sem voru mjög áberandi á sínum tíma. Það var mikill sjarmi yfir gamla Akureyrarvellinum. Síðan finnst sumum gervigrasið ekki eins spennandi og grasið, leikurinn er eflaust hraðari í dag á gervigrasinu en það er fátt betra en að spila fótbolta á góðum grasvelli!

Halldór Áskelsson og KA-maðurinn Erlingur Kristjánsson berjast um boltann í í deildarleik á Akureyrarvelli í september 1987. Leikurinn fór 1:1 og það var Halldór sem gerði mark Þórs.

Þetta er skrýtin uppröðun

Viðureign KA og Þórs er upp á líf og dauða, og nánast um áframhaldandi sæti í Bestu deildinni og Halldór er ekki alveg sáttur við að KA skyldi fá heimaleikinn þó Þór hefði endað ofar í deildinni þegar 22 umferðum var lokið.

„Mér finnst þetta vera skrýtin uppröðun. Þór endaði fyrir ofan KA en þá er stórfurðulegt að liðið í ellefta sæti skuli fá heimaleikina, tvo sex stiga leiki, gegn liðunum í tíunda og tólfta sæti. Þetta finnst mér umhugsunarvert, svo ekki sé meira sagt, burtséð frá því hvaða lið enda í þessum sætum hverju sinni. Vissulega er ekki langt að fara fyrir Þór í þennan útileik en heimaleikur er alltaf heimaleikur.“

Töpuðum yfirleitt ekki gegn KA

Þór er stigi fyrir ofan KA, hefur það mikil áhrif á hvernig leikurinn spilast?

Það er ákveðið forskot sem Þór hefur í byrjun leiks, á móti kemur að markatalan er að stríða okkur, en ég á ekki von á öðru en að þetta verði járn í járn eins og þessir leikir hafa alltaf verið. Í gamla liðinu mínu í Þór töpuðum við yfirleitt ekki gegn KA. Það urðu einhver jafntefli en sigrarnir lentu frekar okkar megin, þarna á níunda áratugnum. Ég tapaði ekki fyrir KA í efstu deild fyrr en ég fór suður og spilaði með Val. KA var samt með gott lið á þessum árum en það voru allir leikir jafnir og harðir og munurinn ekki meiri en eitt mark.

Ég á ekki von á öðru en hörkuleik. En maður veit aldrei hvernig svona leikir geta þróast. Mér hefur fundist vanta stöðugleika í Þórsliðið í ár, vanta að menn trúi á það sem þeir eru að gera. Í síðasta leik byrjaði liðið mjög vel gegn Val og komst yfir en svo var einhvern veginn allur vindur úr því. Vonandi trúa menn því að þetta sé hægt, og ná að sýna stöðugleikann í þessum síðustu leikjum.

Halldór þegar hann var kjörinn knattspyrnumaður Akureyrar árið 1987.

Ásættanlegt í sjálfu sér

Þórsarar eru nýliðar í Bestu deildinni og leika þar í fyrsta skipti í tólf ár. Liðinu var spáð falli í upphafi móts en er stigi fyrir ofan KA og fallsæti fyrir þennan þýðingarmikla leik. Hefði það ekki fyrirfram talist ásættanleg staða?

Í sjálfu sér er þetta ásættanlegt hjá Þórsliðinu, en það eru nokkrir leikir þar sem mér finnst að liðið hefði átt að gera betur. Sérstaklega heimaleikirnir. Við höfum fengið meirihlutann af stigunum gegn efstu liðunum í deildinni en það hefur vantað að vinna leikina sem þyrftu frekar að vinnast. Þeir hafa frekar klúðrast. Auðvitað hafa meiðsli og leikbönn spilað inn í, eins og gengur. En það hafa margir ungir strákar fengið að spila og heilt yfir er þetta ekkert verri staða en búast mátti við, en maður hefði viljað sjá fleiri stig detta inn, sem hefðu verið dýrmæt núna.

En núna á lokasprettinum eru það sérstaklega leikirnir gegn KA og ÍBV, sem eru lykilleikirnir – þetta ræðst allt í þeim.

Halldór og Þorvaldur Örlygsson, núverandi formaður KSÍ, í vorleik á Sanavellinum á níunda áratugnum.

Á von á brjálaðri stemningu

Leikurinn fer fram klukkan 19.30 á laugardagskvöldi og heyra hefur mátt að sumir hafi áhyggjur af því að það gæti ýtt undir ólæti á meðal áhorfenda, sem sumir hverjir muni byrja upphitun snemma dags. Halldór vonast til þess að það hafi sem minnst áhrif á leikinn og allir hagi sér vel.

„Það má vel vera að það verði eitthvað í einhverjum á vellinum, en fyrst og fremst á ég von á brjálaðri stemningu. Ég hef enga trú á öðru en að bæði lið mæti vel stemmd til leiks, utan vallar sem innan, hversu langt sem það nær. En ég held og vona að skemmtanagildið verði mikið og ef veðrið verður til friðs gæti þetta orðið virkilega skemmtilegt kvöld,“ sagði Halldór Áskelsson.