Fara í efni
Mannlíf

Þriðja tap Þórs/KA í röð kom gegn FH

Sara Montoro í þann mund að gulltryggja sigur FH í kvöld með seinna mark leiksins. Melissa Anne Lowder er einbeitt í markinu en Dominique Jaylin Randle náði ekki að hlaupa markaskorarann uppi. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Þór/KA tapaði 0:2 gegn FH á Þórsvelli nú í kvöld. Leikurinn var lokaleikurinn í sjöttu umferð Bestu deildarinnar, efstu deildar Íslandsmóts kvenna í knattspyrnu. Þetta var þriðja tap Þórs/KA í röð.

Heimakonur byrjuðu leikinn mun betur en lið FH sem var fyrir leikinn í næst neðsta sæti deildarinnar. Strax í upphafi leiks fékk Þór/KA liðið gott tækifæri til að komast yfir. Karen María Sigurgeirsdóttir fékk gott færi eftir hornspyrnu á 10. mínútu en skot hennar yfir. Smátt og smátt vann FH-liðið sig inn í leikinn og Þór/KA liðið lenti í vandræðum með að skapa sér færi.

Þegar 30 mínútur voru liðnar af leiknum kom fyrsta markið, nokkuð gegn gangi leiksins. Mackenzie George fékk þá boltann við vítateiginn vinstra megin og átti gott skot sem small í stönginni. Boltinn hrökk út í teiginn þar sem Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir náði til boltans og skoraði með góðu skoti. Staðan var 1:0 FH-ingum í vil þegar flautað var til hálfleiks.

Seinni hálfleikur var virkilega bragðdaufur. FH liðið hélt sig aftarlega á vellinum, sátt við forystuna og tilbúið að beita skyndisóknum. Sóknarleikur Þórs/KA gekk afar illa, mikið var um misheppnaðar sendingar og lítið um að liðið næði að opna vörn FH. Það stefndi allt í 1:0 sigur FH en gestirnir náðu að bæta við marki eftir skyndisókn á 89. mínútu. Heimakonur höfðu þá sett kraft í sóknina og voru fáliðaðar til baka. Sara Montoro gerði markið eftir sendingu frá Shaina Ashouri. Lokatölur 2:0 fyrir FH og var sigurinn sanngjarn þegar uppi er staðið.

Þór/KA liðið hefur nú tapað þremur leikjum í röð, og er eftir leikinn í fimmta sæti deildarinnar með 9 stig. 

Nánar á eftir.