Fara í efni
Mannlíf

Þó líði ár og öld – saga Tónaútgáfunnar

Fjallað er ítarlega um Pálma Stefánsson, Tónabúðina og Tónaútgáfuna í blaðinu Tónlistarbærinn Akureyri, sem er hluti samnefndrar sýningar sem opnuð var í júní 2020 í Minjasafninu á Akureyri og stendur enn yfir.

Saga Tónaútgáfunnar verður rakin í tali og tónum í menningarhúsinu Hofi næsta laugardagskvöld, 27. ágúst, á Akureyrarvöku. Tónleikarnir  sem kallast Tónaútgáfan. Þó líði ár og öld, verða stóra salnum, Hamraborg. Um sönginn sjá þau Erna Hrönn Ólafsdóttir, Magni Ásgeirsson, Stefán Jakobsson, Stefán Elí og Summi Hvanndal. Hljómsveitina skipa Eyþór Ingi Jónsson á orgel og hljómborð, Haukur Pálmason á trommur, Kristján Edelstein á gítar, Magni Ásgeirs á gítar og Summi Hvanndal á bassa.

Í tilkynningu segir:

Pálmi Stefánsson stofnaði Tónabúðina á Akureyri árið 1966. Verslunin seldi hljóðfæri, hljómtæki og hljómplötur. Það reyndist erfitt að bjóða upp á íslenskar plötur í Tónabúðinni þar sem Sportvöru- og hljóðfæraverslun Akureyrar hafði gert einkasölusamninga við flesta íslenska útgefendur. Pálmi stofnaði því Tónaútgáfuna árið 1967 ásamt Jóni Ármannssyni. Saman ráku þeir Tónaútgáfuna í nokkur ár en síðar keypti Pálmi hlut Jóns í fyrirtækinu og rak það til ársins 1985.

 

Pálmi var á þessum tíma jafnframt hljómsveitarstjóri hljómsveitarinnar Póló sem naut mikilla vinsælda og fyrsta platan sem Tónaútgáfan gaf út var smáskífa með Póló og Bjarka.

Í kjölfarið fylgdu svo plötur með mörgum af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar og má þar nefna Björgvin Halldórsson, Ragnar Bjarnason, Flowers, Ævintýri, Örvar Kristjánsson, Geirmund Valtýsson og Hljómsveit Ingimars Eydal.

Árið 1970 gaf Tónaútgáfan út fyrstu íslensku safnplötuna og bar hún nafnið Pop Festival ‘70. Tónaútgáfan gaf einnig út hina goðsagnakenndu plötu Lifun með hljómsveitinni Trúbrot árið 1971.

Enginn aðgangseyrir er inn á tónleikana og í tilkynningunni er fólk því hvatt til að mæta tímalega til að tryggja sér sæti á meðan húsrúm leyfir.

Haukur Pálmason, sonur Pálma Stefánssonar, hefur nú sett í loftið Facebook síðu með skemmtilegum fróðleik um útgáfusögu Tónaútgáfunnar. Smellið hér til að fara á síðuna.