Góður upptaktur að afmælinu – MYNDIR
Akureyrarvaka var sett í Lystigarðinum í gærkvöld eins akureyri.net greindi frá. Afmælisdagur bæjarins er í dag; 164 ár eru síðan Akureyri fékk kaupstaðarréttindi. Fjöldamargt er á dagskránni í dag og það má allt sjá í annarri frétt sem birtist nú í bítið – smellið hér til þess.
Nokkrir skemmtilegir viðburðir voru á dagskrá í gær og hér eru nokkur sýnishorn úr myndavélinni. Miklu fleiri myndir verða birtar síðar.
FROÐUSUND
Löðrandi gleði var í sundlaugargarðinum í gærkvöldi þegar fulltrúi Slökkviliðs Akureyrar mætti á svæðið og framleiddi froðu sem fjölmargir höfðu gaman, einkum yngri sundlaugargestir. Raftónlistarmaðurinn Pitenz spilaði og rapparinn Saint Pete tróð síðan upp.






RÖKKURRÓ
Akureyrarvaka var sett á samkomunni Rökkurró í Lystigarðinum. Berglind Ósk Guðmundsdóttir flutti ávarp, Páll á Húsafelli tróð upp ásamt fleirum og spilaði á steinhörpu, dansarar frá Steps Dancecenter sýntu verkið FLOS og síðan lék tríóið THE Tríó nokkur djasslög.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri á Akureyri.

Listamaðurinn Páll á Húsafelli, lengst til hægri, tróð upp í félagi við aðra; Páll lék á steinhörpuna frægu sem hann smíðaði sjálfur úr steinum úr gili í landi Húsafells þar sem hann býr. Einstakt hljóðfæri það. Hljómsveitarstjórinn, Hilmar Örn Agnarsson er við hlið Páls; hann lék einig á steinhörpuna.





SLAGVERK Í HOFI
Dúettinn Puruñeka Duo bauð upp á magnaða tónleika í Hömrum í Hofi. Þar eru á ferð Akureyringurinn Matiss Leo Meckl og Tirzo Garrigós, spænskur skólabróðir hans við Konunglega tónlistarháskólann í Den Haag í Hollandi, og þeir félagar sýndu mikla fimi og bráðskemmtilega takta; léku bæði á hefðbundin hljóðfæri og ýmislegt annað sem alla jafna er notað til hefðbundnari verkefna en að búa til músík!

Matiss Leo Meckl í Hofi í gærkvöldi. Hann útskrifaðist sem slagverksleikari frá Tónlistarskólanum á Akureyri vorið 2024 og fékk þá hæstu mögulegu einkunn á framhaldsprófi, einkunnina 10 – sá fyrsti í sögu skólans. Frétt akureyri.net um það má sjá hér.


