Akureyrarvaka – Hvað er á dagskrá í dag?
Akureyrarvaka, árleg afmælishátíð bæjarins, hófst í gær með nokkrum viðburðum og var sett formlega í gærkvöld á samkomunni Rökkurró í Lystigarðinum.
Löng hefð er fyrir því að bæjarhátíðin sé haldin sem næst afmælisdegi Akureyrar, 29. ágúst, og svo skemmtilega vill til að þessu sinni að hann ber upp á laugardag. Í dag er afmælinu því fagnað á réttum degi, þegar 164 ár eru síðan Akureyri fékk kaupstaðarréttindi.
Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá í dag eins og sjá má á listanum hér að neðan sem akureyri.net tók saman. Neðst eru svo hlekkir á styttri lista; Tónlist og tónleikar, Myndlist og sýningar, Mannlíf og Fyrir fjölskylduna.
Í DAG, LAUGARDAG
Smellið á rauða letrið til að sjá frekari upplýsingar um þann tiltekna viðburð.
- 10:30–11:30 – Akureyrarmót UFA - þrautabraut (9 ára og yngri) (Frjálsíþróttavöllurinn á Þórssvæðinu)
- 11:00–12:00 – Morgunsigling með Húna II (Bryggja við fiskihöfn)
- 11:00–15:00 – 3 á 3 Götukörfuboltamót Þórs í Garðinum hans Gústa (Við Glerárskóla)
- 11:00–15:00 – Gersemi (Brekkugata 5)
- 11:00–18:30 – Víkingatjaldbúðir á Akureyrarvöku (MA túnið) (opið líka 30. ágúst 11:00–14:30)
- 11:00–22:00 – Sjoppugleði (Listagilið)
- 11:30 & 14:00 – LEGO Bærinn - leiðsögn (Iðnaðarsafnið)
- 12:00 – Yfir Sprengisandinn (Minjasafnið á Akureyri)
- 12:00–13:00 – Þjóðlagadúett Írisar og Hlyns (Minjasafnskirkjan)
- 12:00–13:00 – Fálkafellstónleikar (Fálkafell)
- 13:00 – Þórarinn Eldjárn á Skáld – Upplestur fyrir börn (Skáld Hótel Akureyri)
- 13:00–13:20 – Leikhópurinn Lotta heimsækir Akureyrarvöku (Skrúðhúsið í Lystigarðinum)
- 13:00–14:00 – Friður og stríð í Davíðshúsi (Davíðshús, Bjarkarstíg 6)
- 13:00–15:00 – Vélarnar á Ráðhústorgi (Ráðhústorg)
- 13:00–15:00 – Opið hús hjá Drift EA! (Strandgata 1)
- 13:00–17:00 – Skátafjör á Ráðhústorgi (Ráðhústorg)
- 13:00–17:00 – Fornbílasýning í Listagilinu (Kaupvangsstræti)
- 13:00–17:00 – Kíktu á Kaffi Zonta (Aðalstræti 54)
- 13:00–17:00 – Götumarkaður á Ráðhústorgi (Ráðhústorg)
- 13:00–17:00 – Góðgerðamarkaður Soroptimista (Ráðhústorg)
- 13:00–19:00 – ÞÚFA LOGAR! Sköpun, tónlist og fjör (Gránufélagsgata 46)
- 13:15–13:45 – Jón Jónsson (Menningarhúsið Hof)
- 13:30–14:15 – Úti danstími fyrir 2-5 ára með DSA (Skrúðhúsið Lystigarðinum)
- 13:30–14:30 – Stríðsárin köldu, Norska skíðaherdeildin (Aðalstræti 58)
- 14:00 – Opin æfing hjá LA (Menningarhúsið Hof)
- 14:00–14:15 – Fljúgandi flæði - acro jóga dansatriði (Drift EA, Strandgata 1)
- 14:00–16:00 – Krakkareif (Kaktus)
- 14:00–16:00 – Hvað er Akureyrar Akademían? (Penninn Eymundsson)
- 14:00–17:00 – Afmæli Skógarlundar (Skógarlundur 1)
- 14:00–18:00 – Opin Einvígi með Akureyri HEMA Club (MA túnið)
- 14:15 – ÚLFUR í Drift EA (Strandgata 1)
- 14:30–15:30 – Dægurlagatónleikar á Afmælishátíð Skógarlundar (Skógarlundur 1)
- 15:00 – Pétur og úlfurinn (Menningarhúsið Hof)
- 15:00 – Kalli Örvars hermir eftir og allir syngja með (Menningarhúsið Hof)
- 15:00 – Karamellukast í boði Centro (Centro, Hafnarstræti 97)
- 15:00–15:30 – KÆRLEIKSGJÖRNINGUR (Hafnarstræti 88)
- 15:00–16:00 – Grímur Sigurðsson tekur Sjallalögin! (Ráðhústorg)
- 15:00–18:00 – Opið hús á Presley Grill (Kaupvangsstræti 23)
- 15:00–22:00 – OPNUN: Í snertingu (Listasafnið á Akureyri)
- 15:00–22:00 – OPNUN: Hughrif - litir - form II (Listasafnið á Akureyri)
- 15:00–22:00 – OPNUN: Bergmál umbreytingar: Út í garð (Listasafnið á Akureyri)
- 15:00–22:00 – OPNUN: Hversdagsland (Listasafnið á Akureyri)
- 15:30–17:00 – Sungið af svölunum heima (Langahlíð 10)
- 15:30 – Flökkuhjarta – sveitatónlist gömul og ný (Menningarhúsið Hof)
- 16:00 – UngDans Akureyri á Ráðhústorgi (Ráðhústorg) (sýnt aftur kl. 19:45 í Göngugötunni)
- 16:00–16:30 – Skemmtiatriði úr verðlauna barnasýningu (MA - Kvos)
- 16:00–18:00 – Opinn dagur í Slímstöðinni (Strandgata 53)
- 16:00–00:00 – ROOTS by no request á Akureyrarvöku! (Vamos, Ráðhústorgi)
- 16:30 – Blásum í lúðra (Menningarhúsið Hof)
- 16:30–17:30 – Þórarinn Eldjárn á Skáld – Upplestur & happy hour (Skáld Hótel Akureyri)
- 16:30–17:30 – Tónlistarmyndbanda BINGÓ (Kaktus)
- 17:00–18:30 – Garðtónleikar Rúnars (Hrafnagilsstræti 38)
- 17:30–18:00 – DIANA SUS - WRAPPING RAP (Kaktus)
- 18:00–18:40 – Lysting er sæt að söng (Deiglan) (líka sýnt kl. 16:00 í Hofi)
- 18:00–19:30 – Flökkuhjarta á Leyni (LEYNI Akureyri)
- 19:30–20:00 – Kalli Örvars með uppistands fjöldasöng (Göngugatan)
- 20:00–21:00 – Ljóðalestur á Leyni (LEYNI Akureyri)
- 20:00–21:30 – Ágúst Brynjarsson og Ballhljómsveit Akureyrarvöku (Göngugatan)
- 21:00 – Tónleikakvöld á Leyni (LEYNI Akureyri)
- 21:00–23:00 – Uppistand í Hofi (Menningarhúsið Hof)
- 21:00–23:30 – Jón Jónsson og hljómsveit (Græni Hatturinn)
- 21:30–22:15 – BRÍET x MÚLABERG | AKUREYRARVAKA 2026 (Múlaberg utandyra)
- 22:00–00:00 – Tónleikar á Presley Grill (Kaupvangsstræti 23)
- 23:00–00:00 – Kvöldsigling með Húna II (Bryggja við fiskihöfn)
Hér eru hlekkir á fréttir þar sem búið er að skipta viðburðum dagsins niður í nokkra flokka.
