Fara í efni
Mannlíf

Síðasti dagur til að senda athugasemdir

Frestur til að senda inn athugasemdir við tillögur að breytingum á skipulagi stórs svæðis í miðbænum, sem kynntar voru snemma í desember, rennur út í dag. Bæjaryfirvöld hvöttu fólk til þess að segja skoðun sína og full ástæða er til þess að ítreka það, og hvetja bæjarbúa til að senda inn athugasemdir. Tillögurnar byggjast á niðurstöðum þverpólitísks stýrihóps fulltrúa allra flokka í bæjarstjórn. Svæðið sem breytingarnar ná til er bílastæðið stóra, á milli Glerárgötu og Skipagötu/Hofsbótar, frá Kaupvangsstræti í suðri til Strandgötu í norðri.

Einfaldasta leiðin til að koma á framfæri athugasemdum eða ábendingum er að smella HÉR