Fara í efni
Mannlíf

Nýjar lóðir auglýstar í skipulagi Hríseyjar

Bæjarstjórn Akureyrar hefur auglýst til kynningar tillögu að breytingu á deiliskipulagi í Hrísey þar sem bætt er við lóðum í norðurhluta þéttbýlisins, að mestu ofan núverandi byggðar, hvort tveggja íbúða- og athafnalóðum.

Tillagan nær til 8,6 hektara svæðis þar sem gert er ráð fyrir 12 einbýlishúsalóðum, einni parhúsalóð, þremur raðhúsalóðum og fimm nýjum athafnalóðum. Megináhersla deiliskipulagsins er á að auka framboð fjölbreyttra íbúðalóða í Hrísey, ásamt því að fjölga athafnalóðum ofan byggðarinnar, að því er fram kemur í auglýsingunni. 

Íbúðasvæðið þar sem lóðum er bætt við nær yfir fjögur svæði: 

  • Sólvallagata lengist til austurs og bætt er við fjórum lóðum fyrir einbýlishús.
  • Skólavegur sveigist til norðurs neðan við Gamla Skóla og svo áfram upp til austurs þar sem verða þrjár lóðir fyrir einbýlishús.
  • Miðbraut. Bætt er við lóð fyrir eitt parhús norðan við núverandi parhús nr. 11-13 og lóð fyrir eitt einbýlishús sunnan við núverandi parhús nr. 3-5.
  • Hjallabraut. Bætt er við nýrri götu (tillaga að nafni Hjallabraut) innan skipulagssvæðisins ofan við Miðbraut með tengingu upp frá Brekkugötu. Við Hjallabraut er gert ráð fyrir fjórum lóðum fyrir einbýlishús og þremur lóðum fyrir raðhús. 

Við Hjallaveg, austan íþróttasvæðis er athafnasvæði, en inn þess er í dag ein bygging sem er áhaldahús Akureyrar. Gert er ráð fyrir fimm nýjum athafnalóðum og þannig er skilgreint athafnasvæði fullnýtt.

Kynning á tillögunni stendur til 21. október. Tillöguuppdrátt má nálgast hér. Ábendingar og athugasemdir er hægt að koma á framfæri í gegnum skipulagsgátt stjórnvalda.