Fara í efni
Mannlíf

Langþráð árshátíð MA fer fram í kvöld

Frá árshátíð MA 2015. Ljósmynd: Sverrir Páll.

Loksins, loksins! Árshátíð Menntaskólans á Akureyri verður haldin í kvöld, hin fyrsta síðan 2019. „Undirbúningur hefur staðið um nokkurt skeið og spennan magnast með hverri klukkustundinni,“ segir á vef skólans í morgun.

„Eins og ávallt þegar nemendur blása til árshátíðarveislu eiga gestir von á góðu í Íþróttahöllinni í kvöld. Hlaðborð frá Bautanum og skemmtiatriði frá nemendum sjá viðstöddum fyrir næringu líkama og sálar. Tónlist og dans verða í aðalhlutverki þegar líður á kvöldið, nýjasta nýtt í bland við eldra efni. Flytjendur verða ekki af verri endanum; Friðrik Dór, Birnir, Dj Young Nazareth og Þuríður og Hásetarnir. Þema kvöldsins er djúpsjávarnótt. Húsið opnar klukkan 18:00 en borðhald hefst klukkustund síðar."