Mannlíf
Saga Menntaskólans á Akureyri – Tindur TV
22.06.2026 kl. 10:00
Sjónvarpsþáttur Helga Jónssonar, MA-stúdents 1982 og fyrrverandi nemanda Tryggva Gíslasonar. Helgi veitti akureyri.net góðfúslegt leyfi til að birta þáttinn á útfarardegi Tryggva Gíslasonar.
Helgi segir í kynningu á þættinum:
Hér er gripið niður í sögu Menntaskólans á Akureyri, enda þótt sagan verði aldrei sögð öll. Burðarviðtöl: Tryggvi Gíslason, meistari árin 1972-2003, og Jón Már Héðinsson, meistari 2003-2022. Auk þess eru stutt viðtöl við eldri stúdenta: Huldu Kristjánsdóttur (1939), Kristmund Bjarnason á Sjávarborg (1940), Halldór Þorsteinsson (1941) og Ingvar Gíslason (1947); öll látin.
Smellið hér til að horfa á þáttinn: