Fara í efni
Mannlíf

Kaffi og konfekt í boði á Amtsbókasafninu

Framkvæmdir við bygginguna hófust 2001 eftir töluverðar tafir – ákvörðun var tekin 1987 – en svo var endurbætt gamla húsið og nýbyggingin vígð 6. mars 2004.

Því er fagnað á Amtsbókasafninu á Akureyri í dag, miðvikudag, að 20 ár eru síðan nýbygging safnsins var tekin í notkun og lokið var við miklar endurbætur á gamla húsinu. Boðið verður upp á kaffi og konfekt í tilefni dagsins.

„Saga safnsins er miklu eldri en þessi áfangi er auðvitað mikilvægur, því öll aðstaða – fyrir lánþega og starfsmenn – varð stórkostlega betri! Við erum enn nokkur starfandi í dag sem tóku þátt í þessu ferli, starfsmenn settu saman hillur, vagna og ýmislegt annað,“ segir á vef Amtsbókasafnsins.

„Á þessum 20 árum hefur ýmislegt breyst og í sýningarrými Amtsbókasafnsins hefur stóra sjónvarpið okkar verið sett og hægt er að sjá í kringum fimmtíu myndir sem spanna þessa 20 ára sögu sem og örfáar myndir frá fyrstu framkvæmdum árið 2001.“

Bæjarbúar eru hvattir til þess að koma á bókasafnið í dag, gæða sér á konfekti og kaffi og njóta verunnar með starfsmönnum. „Fyrir fróðleiksfús, þá er hornsteinn nýbyggingarinnar í súlu á mótum nýju og gömlu bygginganna. Þið ættuð að sjá hana í hvert skipti sem þið komið inn á fyrstu hæð til suðurs.“