Fara í efni
Mannlíf

Gjafabréfasmiðja á Amtsbókasafninu í dag

Spurt er á vef Amtsbókasafnsins: Hvernig væri að gefa umhverfisvæna jólagjöf sem þarf ekki að kosta krónu?
 
Í tilefni evrópsku nýtnivikunnar blæs safnið við til gjafabréfasmiðju í dag, „þar sem þátttakendur eru hvattir til þess að gefa upplifun eða góðverk,“ eins og það er orðað á vef safnsins. Viðburðurinn verður á safninu í dag á milli kl. 17.00 og 18.00.
 
Gjafabréfin verða unnin undir handleiðslu listakonunnar Jonnu og „verða að sjálfsögðu úr endurunnum efnivið.
 
Hægt er að gefa hvað sem er með þessum gjafabréfum, segir á vef Amtsbókasafnsins og tekin nokkur dæmi:
 
  • Gönguferð
  • Norðurljósaskoðun með heitu kakói
  • Pössun
  • Matarboð
  • Þrif
  • Sundferð og ís
  • Spilakvöld
  • Snjómokstur
  • Veiðiferð
  • Heimsókn á bókasafnið