Fara í efni
Mannlíf

Hljómsveit úr 2. A var best á Viðarstauk

Sigursveitin á Viðarstauk í MA í gærkvöldi. Ljósmynd: Jón Már Héðinsson.

Hljómsveit bekkjarsystkina úr 2. bekk A bar sigur úr býtum áViðarstauk, árlegri tónlistarkeppni Menntaskólans á Akureyri, sem haldin var í Kvosinni í gærkvöldi.  Sveitina skipuðu Hrefna Logadóttir (söngur), Óskar Máni Davíðsson (bassi), Matiss Leo Meckl (trommur) og Þorsteinn Jakob Klemenzson (gítar). 

Viðarstaukur er tónlistarkeppni eða hátíð sem TóMA (tónlistarfélag MA) stendur fyrir og hefur verið haldin nánast árlega frá 1983. Segja má að viðburðurinn sé fjarskyldur ættingi Woodstock, þeirrar miklu hátíðar sem fram fór í Bandaríkjunum 1969; að minnsta kost að nafninu til. „Það var góð og notaleg stemning í Kvosinni í gærkvöldi og ljóst að margt hæfileikaríkt tónlistarfólk er í skólanum,“ segir á vef MA.

Í 2. sæti var í keppninni varð Birta Karen Axelsdóttir 3U sem söng, í 3. sæti var Arna Rún Arnarsdóttir 3. A sem söng með húsbandi skólans og jafnar í 4. til 5. sæti voru Hervör Frigg Hjörvarsdóttir 2. A sem spilaði á trommur og María Björg Sigurðardóttir 1. FL sem spilaði á þverflautu.

Kynnar voru Birgir Orri Ásgrímsson 2. A og Sölvi Jónsson 2. X, og þeir brustu reyndar í söng líka, að því er segir á vef MA.