Fara í efni
Mannlíf

Heldur lesandanum sannarlega við efnið

AF BÓKUM – 98

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum akureyri.net frá bók eða bókum á þriðjudögum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Eydís Stefanía Kristjánsdóttir

_ _ _

Nornin eftir Freidu McFadden

Nornin er virkilega góð og spennandi bók sem náði strax athygli minni. Freida McFadden kann svo sannarlega að byggja upp spennu og halda lesandanum við efnið. Sagan er þannig uppbyggð að mann langar alltaf að lesa aðeins einn kafla í viðbót og maður reynir stöðugt að átta sig á því hvað býr að baki atburðunum.

Það sem mér fannst sérstaklega skemmtilegt við bókina er hvernig spennan helst út alla söguna. Maður er sífellt að velta fyrir sér hvað sé satt og hverjum sé hægt að treysta. Þegar maður heldur að maður sé farinn að sjá fyrir sér hvernig sagan muni enda kemur fléttan í lokin manni svo sannarlega á óvart. Endirinn var alls ekki sá sem ég hafði búist við!

Mér finnst alltaf sérstaklega gaman að lesa bækur sem ná að koma manni í opna skjöldu og fá mann til að endurmeta það sem maður hélt sig vita. Nornin gerði einmitt það. Hún er grípandi, vel skrifuð og heldur manni í spennu allt til síðustu síðna.

Ég mæli hiklaust með Norninni fyrir þá sem hafa gaman af spennusögum, óvæntum vendingum og sögum sem maður á erfitt með að leggja frá sér.