Veruleiki kvenna á sögulegum tímum
AF BÓKUM – 93
Í dag skrifar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir
_ _ _
Næturgalinn eftir Kristin Hannah er án efa ein af mínum uppáhalds bókum.
Sagan gerist í Frakklandi í seinni heimstyrjöldinni og segir frá tveimur systrum, þeim Vianne og Isabelle. Þær systur hafa alla tíð verið mjög ólíkar, Vianne er róleg, skynsöm og ábyrg, en Isabelle er fljótfær, uppreisnargjörn og skapheit. Þegar Þjóðverjar hernema Frakkland bregðast þær systur við með gjörólíkum hætti. Vianne telur best að bíða af sér storminn og láta lítið fyrir sér fara meðan Isabelle reynir af fullum krafti að leggja andspyrnunni lið.
Þrátt fyrir að vera svona ólíkar er auðvelt að setja sig í spor beggja systra. Ákvarðannir Vienne litast af því að hún á dóttur. Hún veit að ef hún kemur sér í ónáð nasista verður dóttir hennar ein og yfirgefin. Aðstæður hennar verða svo enn erfiðari þegar heimili hennar er tekið eignarnámi og þess krafist að hún hýsi herforingja nasista. Isabelle sem er bæði yngri og barnlaus er hins vegar tilbúin að leggja allt í sölurnar til þess að berjast fyrir betri heimi, jafnvel þó það feli í sér að yfirgefa fjölskyldu sína og leika tveimur skjöldum.
Sagan er skáldsaga en er þó innblásin af sögu hinnar belgísku Andrée de Jongh sem bjargaði tugum flugmanna bandamanna sem hröpuðu á yfiráðasvæðum nasista, með því að dulbúa þá og fylgja þeim fótgangandi til Spánar, þaðan sem þeir gátu snúið aftur á vígstöðvarnar og haldið áfram að berjast.
Kristin Hannah hefur einstakt lag á að skrifa sögulegar skáldsögur um konur á erfiðum tímum, þar má til dæmis nefna The Women sem fjallar um hjúkrunarkonur í Víetnamstríðinu og The Four Winds þar sem viðfangsefnið eru konur og börn á flótta í Rykskálinni (e. Dust bowl) í miðvesturríkjum Bandaríkjanna á fjórðaáratug síðustu aldar. Þegar sögubækurnar fjalla að mestu leyti um karlmenn á hverjum tíma er kærkomið að fá innsýn í veruleika kvenna á sögulegum tímum.
Kvikmynd byggð á Næturgalanum er væntanleg í byrjun næsta árs, en þær systur Elle og Dakota Fannig fara með hlutverk Isabelle og Vianne. Ég hlakka mikið til þess að sjá þessa áhrifamiklu sögu á hvíta tjaldinu.