Fara í efni
Mannlíf

Gróa öll sár að fullu?

AF BÓKUM – 94

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum akureyri.net frá bók eða bókum á þriðjudögum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Þorsteinn Jónsson

_ _ _

Í sumar kom út bók sem heitir Aumingi mella syndari heilagur andi. Áhugaverður titill og skemmtileg kápuhönnun en hún fór samt svolítið framhjá mér. Þegar ég var að finna bók um daginn til að segja frá hér, þá leit ég í hillurnar með nýjum bókum á Amtsbókasafninu og las aftan á nokkrar þeirra. Ég ákvað að fyrrnefnd bók eftir Lilju Ósk Snorradóttur yrði fyrir valinu.
 
Ég vissi ekki neitt nema það sem ég hafði lesið aftan á bókinni en ég varð mjög hrifinn. Bókin segir frá hinni sjö ára Sölku Álfheiði Randversdóttur og hvernig hún tekst á við það að missa mömmu sína, sem var fallegust og best og vissi allt. Þær mæðgur voru bestu vinkonur og gerðu allt saman. Það er því engin furða að eldklár sjö ára stúlkan reyni að gera veröldina rökrétta aftur eftir að hafa upplifað tvo verstu daga lífs síns: sá versti var þegar mamma hennar dó og sá næstversti þegar Guð hætti að tala við hana.
 
Hún útbýr til dæmis Guðslista sem fer yfir mögulegar ástæður þess að Guð hafi hætt að tala við hana. Út frá þeim pælingum er titill bókarinnar kominn. Eðlilega skilur sjö ára stúlkan ekki öll orð og sumar útskýringar hafði hún fengið frá mömmu sinni, sem flestu fólki þætti kannski ekki við hæfi að segja. Svo er Salka líka með bók þar sem hún skrifar nákvæmlega það sem sumir í kringum hana segja, sérstaklega amma Dóra, til að læra betur síðar hvað það þýðir.
 
Sólbjört, mamma Sölku, hefur greinilega verið litríkur karakter og mér finnst ég hálfpartinn þekkja hana svo vel út frá þessum lýsingum í bókinni, en þær koma í gegnum frásagnir helstu persónanna: Sölku hinni 7 ára, Randveri pabba hennar og frú Sigríði fyrrum skólastjóra. Kaflarnir heita eftir þessum persónum á víxl og sagan sögð í fyrstu persónu út frá sjónarhorni þeirra.
 
Sagan gerist í litlum bæ úti á landi þar sem allir þekkja alla, mikið talað undir rós og fáir sem koma hreint og beint fram. Salka kemur hreint og beint fram. Heldur betur! Og hún sér þegar fullorðið fólk er ekki að segja satt. Randver pabbi hennar er bæjarstjórinn sem er undir miklum áhrifum frá foreldrum sínum. Hann og Sólbjört kynntust mjög ung og áttu sér stóra drauma sem rættust ekki. Við komumst að þessu öllu í gegnum þessar þrjár persónur sem skiptast á því að „tala við okkur“ lesendurna.
 
Það er augljóst og átakanlegt hvað er í gangi með Sólbjörtu. Spurningar eins og „hefði ég getað brugðist fyrr við?“, „hefði ég getað verið betri...?“ og „hvað ef ...?“ leita á mann. Ekki vegna þess að ég lifði mig svo inn í hlutverk ýmissa persóna, heldur vegna þess að bókin fær mig til að hugsa og vilja skilja betur málefni eins og geðsjúkdóma. Hvað er hægt að gera? Það er stóra spurningin, sem mér finnst að við öll eigum að hugsa um.
 
Það er ekki auðvelt að skrifa texta út frá sjónarhóli sjö ára stúlku sem hefur misst mömmu sína og misst sambandið við Guð. Lilja Ósk gerir það snilldarvel að mínu mati. Salka er svo ljóslifandi í mínum huga og þegar ég las ýmsa hluta bókarinnar langaði mig einfaldlega að reyna að gera gagn til að henni liði betur! Svo tekst henni líka vel til að setja sig í spor Randvers, þegar hann talar, og mér finnst frú Sigríður líka stórkostleg persóna. Öll eru þessi þrjú að glíma við ólýsanlegan missi og söknuð, erfiðar aðstæður. Við erum öll ólík og horfum ekki eins á hlutina. Þar af leiðandi held ég að lesendur þessarar bókar gætu horft mismunandi augum á ýmislegt sem þar er rætt.
 
Ég segi ekki að ég hafi beint grátið þegar ég las bókina en það kom nokkrum sinnum ryk í augun. Hvort það sé Lilju „að kenna“ eða því að ég var að taka upp úr kössum í nýju íbúðinni skal ég ekki segja, en ég hlakka til að lesa næstu bók eftir Lilju.
 
Ég ætla heldur ekki að svara spurningunni sem heiti þessa ritdóms ber. Reyndar læt ég frú Sigríði eiga lokaorðin, þar sem hún vitnar í upphafsstafina á nafni Sölku (S.Á.R.): „Aumingjans barnið, kannski voru örlög hennar ráðin alveg frá fyrsta degi með þessari óheppilegu skammstöfun.“