Fara í efni
Mannlíf

Alvilda – íslenskur samfélagsmiðill

Ragna Árný Lárusdóttir og Snorri Gylfason hafa skapað Alvildu - nýjan samfélags- og menningarmiðil án óþarfa áreitis.

Alvilda heitir nýr íslenskur samfélags- og menningarmiðill sem verið er að hleypa af stokkunum. Akureyringar geta kynnst Alvildu betur þessa dagana því allir viðburðir Akureyrarvöku eru inni í appinu og notendur geta valið þar þá viðburði sem þeir ætla að sækja og þar með sniðið sína eigin dagskrá. Akureyrartengingin kemur víðar við sögu og stofnendur Alvildu verða fyrir norðan um helgina. Á laugardaginn gefst öllum kostur á að hitta þau sem standa að Alvildu, forvitnast og fræðast.

Alvilda er til sem smáforrit fyrir bæði Apple og Android tæki og kostar ekkert.

Það eru hjónin Ragna Árný Lárusdóttir og Snorri Gylfason sem eru fólkið á bak við Alvildu og þau hafa unnið undanfarna mánuði að þróun kerfisins. Þau fluttu nýlega aftur heim til Íslands eftir áralanga búsetu erlendis, lengst af í Bandaríkjunum þar sem Snorri vann m.a. hjá Meta, móðurfyrirtæki Facebook.

Hvað er Alvilda?

En hvað er Alvilda og hvernig nýtist appið fólki í daglegu lífi? Hvað leysir Alvilda betur en aðrir samfélagsmiðlar?

„Alvilda er íslenskur samfélagsmiðill sem við erum að byggja til þess að auðvelda fólki að finna það sem er að gerast í kringum það og tengjast fólki og samfélaginu sínu í rólegra viðmóti án óþarfa áreitis,“ segja þau Ragna og Snorri og leggja áherslu á að allir notendur séu raunverulegt fólk og til að stofna aðgang að Alvildu þarf staðfestingu með rafrænum skilríkjum og að vera í það minnsta 16 ára á árinu. „Það hefur líka komið okkur skemmtilega á óvart hvað það virðist skipta fólki miklu máli að við hýsum öll gögn á Íslandi,“ bæta þau við.

Samanburðurinn við Facebook er óhjákvæmilegur og þegar þau eru innt eftir því hvernig Alvilda sé öðruvísi segja þau að þeirra kerfi einblíni á íslenskt umhverfi.

Facebook er með allan heiminn, Alvilda er á Íslandi.

„Við erum að tala við fólk og skilja hvað það er sem að þeim finnst vanta og notum því nálægðina við notendur til þess að byggja upp notendavænan miðil,“ svara þau og benda á að á Facebook sé allt að týnast í allskonar dóti sem fólk bað ekki um. „Á Alvildu geturðu stýrt því sem að þú vilt sjá og fundið það sem þú ert að leita að með skipulagðri uppsetningu. T.d. ef að þú ert búin að melda þig á viðburð, þá ferðu í – yfirsýn – undir viðburðum og smellir á – mæti - og þar er allt í tímaröð sem þú ætlar að fara á. Sömuleiðis geturðu smellt á – ekki svarað – og fundið viðburði sem er búið að bjóða þér á, þannig ertu ekki að missa af viðburðum,“ segja Ragna og Snorri og ítreka að það sé ekkert annað sem birtist á skjánum hjá fólki en það sem það sjálft stýrir. „Við viljum ekki keppa um athygli fólks. Við viljum hjálpa fólki að nota tímann sinn betur.“

„Vildum ekki endurgera Facebook“

Auk viðburða geta notendur sett inn færslur og myndir undir eigin nafni, vingast við aðra notendur og skoðað þeirra efni, kommentað og lækað. Í appinu eru líka bæði Síður og Hópar sem fólk þekkir úr öðrum samfélagsmiðlum, og þau Ragna og Snorri segja að spjall-fídusinn sé næstur á dagskrá, innan nokkurra vikna. „Við stefnum sömuleiðis á að bjóða upp á vinnustaðaútgáfu á næstu mánuðum,“ bæta þau við.

Forsíða notanda í Alvildu. Þar sér viðkomandi strax sitt dagatal og þá viðburði sem hann ætlar að mæta á.

Þar sem Snorri var innanbúðarmaður hjá Facebook ákveður blaðamaður að spyrja hvort þau séu að búa til nýtt Facebook.

Þau samsinna því að reynslan frá Facebook hjálpi þeim svolítið við að búa til eigin sýn á sinn samfélagsmiðil. En Alvilda sé vissulega öðruvísi. „Snorri vann í tólf ár hjá Meta og hefur því séð innan frá hvað þarf til að byggja kerfi sem milljónir manna nota. En Alvilda varð ekki til vegna þess að okkur langaði að endurgera Facebook. Hún varð til vegna þess að við sáum pláss fyrir annars konar samfélagsmiðil,“ útskýra þau og bæta við að þau geti tekið með sér það sem hafi reynst vel í samfélagsmiðlum – að tengja fólk, gera miðlun upplýsinga auðvelda og byggja góð tæknikerfi – án þess að þurfa að taka allt hitt með. Allt þetta sem fer kannski í taugarnar á mörgum samfélagsmiðlanotendum. „Það mætti segja að reynslan frá Facebook hjálpi okkur að vita bæði hvað við viljum gera og hvað við viljum gera öðruvísi,“ kjarna þau svarið.

Ragna og Snorri kynntust í MA

Snorri er fæddur og uppalinn Akureyringur en Ragna er úr Keflavík. Þau kynntust í Menntaskólanum á Akureyri og þrátt fyrir að hafa búið lengi erlendis þá hafa þau alltaf komið norður í heimsóknir á sumrin. „Pabbi hans Snorra býr á Akureyri og við eigum marga góða vini þar. Svo er líka gamað að nefna að við erum með netþjónana okkar í Hlíðarfjalli, hjá atNorth og fyrir sunnan,“ segja þau.

Það eru fleiri hliðar á Akureyrartengingunni því inni í Alvildu eru allir viðburðirnir á Akureyrarvöku, sem senn fer að hefjast.

„Okkur fannst það skemmtileg hugmynd að byrja á að kynna okkur í heimabæjunum, Akureyri og Keflavík, og höfðum samband við forsvarsmenn Akureyrarvöku varðandi hugsanlegt samstarf. Þau tóku vel í það og við erum með alla viðburðina í Alvildu undir síðunni Akureyrarvaka. Þar getur fólk séð alla viðburðina og meldað sig. Síðan farið á Viðburði í appinu og fengið yfirsýn yfir sitt plan,“ segja þau Ragna og Snorri. „Ef einhver vill búa til sinn viðburð eða stofna hóp til að skipuleggja sig yfir helgina þá er það auðvitað hægt og að sjálfsögðu hvetjum við fólk til þess,“ bæta þau við og blaðamaður er þegar byrjaður að spá í viðburði og plana sína Akureyrarvöku í appinu. Og gengur bara vel.

Skjáskot úr Alvildu - síða Akureyrarvöku með öllum viðburðum.

Ragna og Snorri verða á Akureyri um helgina og ætla að kynna appið og möguleika þess fyrir þeim sem vilja skoða hvað það býður upp á. 

„Við verðum á Vamos með aðstöðu á laugardaginn frá kl. 12-17 og allir eru velkomnir þangað til að fá innsýn í Alvildu og hvað er hægt að gera þar. Að sjálfsögðu má fólk sem er að nota appið koma við og segja okkur hvað þeim finnst. Við erum alltaf að þróa og betrumbæta og viljum endilega heyra í fólki hvað það vill sjá eða breyta,“ segja þau Ragna Árný Lárusdóttir og Snorri Gylfason.


Vefsíða Alvildu - alvilda.is