Mannlíf
Ein með öllu – hvað er á dagskrá í dag?
31.07.2026 kl. 12:00
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu hefst af fullum krafti í dag; Sumarkjóla- og freyðivínshlaupið í Kjarnaskógi í gær var einskonar upphitun eða þjófstart... Hér fylgir yfirlit yfir dagskrána á hátíðinni, frá Vinum Akureyrar, sem standa að hátíðinni, og aðra viðburði í bænum – akureyri.net birtir lista sem þennan aftur að morgni laugardags og sunnudags.
DAGSKRÁIN Í DAG, FÖSTUDAG
MIÐBÆRINN
- Kl. 13:00 – Markaðsstemning á Ráðhústorgi – Markaðurinn opnar og verður á sínum stað alla helgina. Þar verður fjölbreytt úrval vara og tilvalið að gera góð kaup.
- „Verslanir, veitingastaðir, kaffihús, ísbúðir og barir taka vel á móti gestum. Nýttu daginn til að rölta um miðbæinn og njóta lífsins – miðbærinn er fyrir okkur öll.“
- Kl. 15:00–21:00 – Dagvaktin DJ Ayobe sér um tónlistina á útisvæðinu við Sjallann. „Tilvalið að stoppa við, njóta stemningarinnar og taka nokkur spor undir berum himni,“ segir í tilkynningu.
- Vamos & Fiesta – Opið kl. 11:30–03:00 – Steinbakaðar pizzur, smáréttir, shuffleboard, píla, pool og margt fleira í boði. Dansgólfið á efri hæð opnar kl. 23:00.
- Á útisvæðinu fer fram Vamos Versló Fest, þar sem Elvar, Alaska og Ízleifur taka lagið og FM95BLÖ verður í beinni útsendingu frá kl 16-18. NOUNOU Festival er kl 17-20 fyrir utan Vamos en þar verður hægt að gera góð kaup, að því er segir í tilkynningunni.
-
Sjallinn Frá kl. 23:45. 18 ára aldurstakmark! Fram koma: Elvars, Alaska, Flóna og Ízleifs. Miðasala er á tix.is en einnig hægt að kaupa helgarpassa
-
Græni hatturinn Ljótu hálfvitarnir kl. 21:00.
- Centrum kitchen&bar Dj Ayobe
AKUREYRARVÖLLUR
- Kl. 13:00–23:30 – RISA tívolí – Tívolí fyrir alla fjölskylduna verður opið allan daginn. Miðar fást á staðnum.
- Fjölbreytt úrval matarvagna verður á Akureyrarvelli alla helgina. Opið frá kl 16:00 og fram á kvöld.
- Lifandi tónlist og plötusnúðar sjá um að halda stemningunni uppi yfir daginn og fram á kvöld.
- Kl. 15:00-22:00 – Armbönd verða afhent við suðurhlið Akureyrarvallar á Hólabraut – Armbönd á FM95BLÖ tónleikana á Akureyrarvelli á laugardagskvöld, í Sjallann eða á Bogaball. Armbandið er inngöngumiði á viðburðina; skýrt er tekið fram í tilkynningu að enginn komist inn á svæðið án armbands og að skilríki verði skoðuð við inngöngu.
KJARNASKÓGUR
- Kl. 16:00 – Krakkahlaup Súlur Vertical. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Súlur Vertical.
DALSBRAUT 1
- Kl. 12:00–16:00 POP-UP markaður. „Fjölbreytt úrval íslenskra verslana og netverslana býður gesti velkomna á POP-UP markað sem verður opinn alla helgina.“
GLERÁRTORG
- Verslunarmiðstöðin er opin kl. 10:00–18:00
- Nettó: Opið 09:00–20:00
- Iðunn Mathöll: Opin 11:30–22:00
- Skor: Opið 14:00–23:00
- Verksmiðjan: Opið 11:00–21:30
Nánari upplýsingar um dagskrá má finna á heimasíðu Glerártorgs.
SKÓGARBÖÐIN
- Opið kl. 09:00–23:30 Skógarböðin eru opin alla helgina. Fjöldi fólks er í bænum og mælt er með því að bóka tíma fyrirfram á heimasíðu Skógarbaðanna.
Listsýningar
- Nánd – Mjólkurbúðinni. Myndlistarsýning Bjargar Eiríksdóttur sem stendur til 3. ágúst. Opið er kl. 14-17 alla daga. Björg vinnur með fjölbreytta miðla þar sem náttúran og samband manns og umhverfis eru í forgrunni.
- Hédna – Menningarhúsinu Hofi. Sýning sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu á Akureyri. Viðfangsefnin fjölbreytt þar sem tekist er á við tilveru í flóknum heimi með aðferðum myndlistar. Sýningin er opin til 16. ágúst.
- Sjálfsástarvírus - Minnisvarði #3 – Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir. Listasafnið á Akureyri. Útilistaverk á svölum safnsins.
- Zimoun – Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Saga Íslands: 2. hluti – Eiríkur Páll Sveinsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Guð launi þér – Úlfur Logason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Hughrif - Litir - Form I – Valin verk fyrir sköpun og fræðslu. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Sýning um heilagan fugl – Örlygur Kristfinnsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Andlegar verðmætavindur Magnúsar – Magnús Helgason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- S-I-L-I-C-A-0-3 – Hulda Rós Guðnadóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Brák Jónsdóttir. Flóra menningarhús, Sigurhæðum. Sýningin stendur til 10. október 2026.