Fara í efni
Mannlíf

„Straumurinn norður“ – og í Kjarnaskóg

Sumarkjóla- og freyðivínshlaupið var haldið í annað sinn á síðasta ári, á fimmtudegi fyrir Verslunarmannahelgi, og leikurinn verður endurtekinn í Kjarnaskógi í dag. Ljósmyndari: Rakel HinriksdóttirMynd: Rakel Hinriksdóttir

Aðstandendur hátíðarinnar Einnar með öllu á Akureyri búast við metaðsókn í ár; „straumurinn liggur norður“ hefur heyrst reglulega undanfarið og þrátt fyrir að veðurfræðingar bjóði ekki upp á draumaspá Norðlendinga virðist, miðað við óvísindalega rannsókn á bílaumferð og öðrum þáttum tilverunnar, ekki fjarri lagi að straumurinn liggi norður. 

Dagskrá Einnar með öllu er ekki ósvipuð og síðustu ár nema hvað tveimur Bogaböllum hefur verið bætt við; ball verður sem sagt í íþróttahúsinu Boganum á laugardags- og sunnudagskvöld; að loknum viðburðinum Öll í einu, sem nú er kynntur sem tónleikar FM95BLÖ, á Akureyrarvelli fyrra kvöldið og síðan í kjölfar hinna hefðbundnu Sparitónleika á sama stað kvöldið eftir.

Sumarkjóla- og freyðivínshlaup

Í dag klukkan 17:00 er fyrsti dagskrárliður Einnar með öllu, viðburður sem notið hefur vinsælda síðustu tvö ár – Sumarkjóla- og freyðivínshlaup í Kjarnaskógi. „Skemmtilegt hlaup þar sem gleðin er í fyrirrúmi. Vinsæll viðburður sem hefur stækkað ár frá ári,“ eins og segir í tilkynningu frá aðstandendum hlaupsins.

20 ára aldurstakmark er í hlaupið. Nú er heldur betur rétti tíminn til þess að draga fram sumarkjólinn og/eða sumarfötin sem þú hefur ekki náð að nota í sumar!“ segir á Facebook síðu viðburðarins. 

Mæting er á planinu við Kjarnakot og skv. tilkynningu er það eina sem þátttakendur þurfa að muna eftir – fyrir utan kjólinn eða annars konar sumarföt – er að taka með sér ískalda 750 ml flösku af freyðivíni, áfengu eða óáfengu, og reyndar er líka minnt á að enginn gleymi góða skapinu ...

Hlaupaleiðin er sú sama og í fyrra, einn 2,2 km hringur og tekið fram að hlaupa megi eða ganga, eða „hlabba“ sem er væntanlega hraði einhvers staðar þar á milli. Fyrst og fremst sé um skemmtun að ræða.

Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburði hlaupsins

  • Í kvöld verða tónleikar Ljótu hálfvitanna á Græna hattinum, Rúnar Eff leikur á Centrum og Pétur Jóhann verður með uppistand á Múlabergi.
  • Hér að neðan má sjá myndasyrpu frá Sumarkjóla- og freyðivínshlaupimnu á síðasta ári.

Nánar um Eina með öllu síðar.