Fara í efni
Mannlíf

Sólin skein og allir í stuði í Kjarnaskógi

Brosa, hafa ljósmyndararnir Hilmar Friðjónsson og Þorgeir Baldursson hugsanlega hrópað en keppendum misheyrst. Gleðin var altént við völd í Sumarkjóla- og freyðivínshlaupinu í Kjarnaskógi. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Nokkur hundruð konur tóku þátt í Sumarkjóla- og freyðivínshlaupi sem fram fór í Kjarnaskógi undir kvöld og markaði í raun upphaf Einnar með öllu, fjölskylduhátíðarinnar vinsælu á Akureyri um verslunarmannahelgina.

Skemmtileg stemning var í skóginum enda hafði einhver tekið að sér að gefa veðurspánni langt nef; sólin skein í logninu og aðstæður gátu því vart verið betri. Þátttakendur voru töluvert fleiri en á síðasta ári að sögn Maríönnu Margeirsdóttur, sem stendur fyrir viðburðinum og gleðin var svo sannarlega við völd.

Fleiri myndir seinna