Fara í efni
Mannlíf

Kjarnakonur á ferð í skóginum – MYNDIR

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Nokkur hundruð konur tóku þátt í Sumarkjóla- og freyðivínshlaupi sem fram fór í Kjarnaskógi í gær, eins og akureyri.net sagði stuttlega frá. Segja má að hlaupið hafi markað upphaf Einnar með öllu, fjölskylduhátíðarinnar vinsælu sem haldin er á Akureyri um verslunarmannahelgina.

Skemmtileg stemning var í skóginum enda hafði einhver tekið að sér að gefa veðurspánni langt nef; sólin skein í logninu og aðstæður gátu því vart verið betri. Þátttakendur voru töluvert fleiri en á síðasta ári að sögn Maríönnu Margeirsdóttur, sem stendur fyrir viðburðinum og gleðin var svo sannarlega við völd.