Fara í efni
Mannlíf

Dönsk örvhent skytta til liðs við KA/Þór

Handboltaparið Pætur Mikkjálsson Sofie Söberg Larsen.

Danska handboltakonan Sofie Söberg Larsen er gengin til liðs við Íslandsmeistara KA/Þórs. Sofie er 186 cm, örvhent skytta, sem lék síðast með H71 í Færeyjum.

Segja má að hún sé óvart orðin leikmaður KA/Þórs. Sofie, sem er unnusta Pætur Mikkjálsson, færeyska línumannsins sem kom til KA í sumar,  lék ekkert á síðasta keppnistímabili og hafði ekki hugsað sér að vera í handbolta í vetur heldur einbeita sér að námi og styðja við bakið á unnustanum. Hún fékk svo að koma á æfingar hjá Íslandsmeisturunum, stóð sig mjög vel og ákveðið var að semja við hana.

Sofie er komin með leikheimild með KA/Þór og verður hugsanlega með gegn Fjölni í bikarkeppninni á laugardaginn.