Fara í efni
Mannlíf

Brugðið á leik á Amtsbókasafninu

Starfsmenn Amtsbókasafnsins á Akureyri hafa brugðið á leik upp á síðkastið til að vekja athygli á starfseminni með því að taka bráðskemmtilegar myndir og birta á Facebook síðu safnsins. Þar leika bækur stórt hlutverk og er auðvitað við hæfi, en starfsfólkið sjálft líka. Bókarkápa og starfsmaður verða eitt, ef svo má segja. 

Sjón er sögu ríkari!

  • Vert er að geta þess í leiðinni að tvö kvöld í viku er opið á bókasafninu til klukkan 22.00; á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum. Svo hefur verið í nóvember og verður til 15. desember.

Svala Hrönn Sveinsdóttir tilbúin í myndatöku, Hörður Ingi Stefánsson stjórnar „vindvélinni“.