Fara í efni
Mannlíf

Blak: Tveir góðir sigrar gegn Aftureldingu

KA fagnaði tvívegis sigri gegn Aftureldingu um helgina. Mynd: Facebook-síða KA.

KA og Afturelding mættust tvívegis um helgina í mikilvægum leikjum í toppbaráttu efstu deildar karla í blaki. KA-mönnum tókst að knýja fram nauman sigur í hnífjöfnum leik á laugardag en unnu síðan öruggan sigur í baráttuleik á sunnudag.

Fyrri viðureignin var sannkallaður háspennuleikur. KA vann fyrstu hrinuna 25:21 en Afturelding komst yfir með því að sigra næstu tvær hrinur, báðar eftir upphækkun og mikla spennu. Fyrst 28:26 og síðan 26:24. Fjórða hrinan var einnig hnífjöfn framan af en í stöðunni 13:13 hrukku KA-menn í gang, komust í 23:14 og unnu hrinuna örugglega, 25:17. Allt orðið jafnt og aðeins oddahrinan eftir. Hún þróaðist á svipaðan hátt og var jöfn framan af en í stöðunni 9:9 stakk KA af og landaði öruggum sigri, 15:11, og vann þar með leikinn 3:2.

Öruggur sigur í jöfnum leik

Seinni viðureignin þróaðist í svipaðan hátt til að byrja með. Mosfellingar voru með 17:13 forystu í fyrstu hrinu þegar KA vaknaði til lífsins og skoraði 9 stig í röð. Afturelding saxaði á forskotið og tókst næstum að jafna en KA landaði sigri að lokum, 25:23. Næstu tvær hrinur voru lengst af í járnum en það voru KA-menn sem náðu að knýja fram 25:22 sigur í þeim báðum og vinna leikinn þar með 3:0. Öruggur sigur í nokkuð jafnri viðureign.

Með þessum sigrum komst KA uppfyrir Mosfellinga í stigatöflunni og er KA nú í 2. sæti með 44 stig en Hamar er á toppnum með 50 stig. KA á þó leik til góða.

KA á eftir að leika tvo leiki í deildarkeppninni fyrir úrslitakeppnina, báða gegn HK á útivelli.

Staðan í Unbrokendeild karla