Spennandi lokasprettir í blaki og íshokkí
Nú fer að draga til tíðinda í hinum ýmsu deildum sem spilaðar eru yfir veturinn og úrslitakeppnir nálgast. Toppbaráttan í Unbroken-deild karla í blaki er jöfn og spennandi, í dag er leikið til úrslita í bikarkeppni karla og kvenna í handbolta og um helgina ráðast úrslitin í Toppdeild karla í íshokkí.
Jöfn og spennandi barátta í blakinu
Toppbaráttan í Unbroken-deild karla í blaki er jöfn og spennandi þegar liðin eiga aðeins örfáa leiki eftir. Hamar stendur best að vígi með 44 stig, þá koma Afturelding og Þróttur R. með 40 stig og KA með 39 stig, en liðin eiga mismarga leiki eftir. KA og Afturelding eiga fjóra leiki eftir, Hamar þrjár og Þróttur tvo.
KA leikur síðustu heimaleiki sína í deildinni í dag og á morgun þegar Mosfellingar í Aftureldingu koma í heimsókn norður.
- Unbroken-deild karla í blaki
KA-heimilið kl. 15:00
KA - Afturelding - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Barist um deildarmeistaratitilinn í íshokkí karla
Karlalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí sækir lið Skautafélags Reykjavíkur heim um helgina og mætast liðin tvívegis, á laugardag og sunnudag. Upphaflega átti að fara fram þriðja og síðasta Ofurhelgin í Toppdeild karla þar sem öll þrjú liðin mætast sömu helgina, en breyting hefur orðið á leikjadagskrá deildarinnar. Fjölnir fékk leyfi hjá stjórn ÍHÍ til að gefa þá leiki sem karlaliðið átti eftir í deildinni. Því eru aðeins eftir tveir leikir í deildinni, tvær viðureignir SA og SR í Reykjavík í dag og á morgun.
- Toppdeild karla í íshokkí
Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
SR - SA - Útsending: Icehockeyicelandtv.is
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Að frátöldum leikjunum sem Fjölnir gefur hefur SA náð sér í 25 stig, en SR 29. SA fer því í 31 stig með stigunum fyrir gefnu leikina, en SR í 32 stig. Það eru því mikilvæg sex stig í boði í Laugardalnum um helgina. SA og SR hafa mæst sex sinnum í vetur. SA hefur unnið þrjá heima og einn fyrir sunnan, en SR einn úti og einn heima.
Það ræðst því um helgina hvort liðið verður deildarmeistari og tryggir sér oddaleiksréttinn í úrslitaeinvíginu. Ef SR vinnur fyrri leikinn án þess að fara í framlengingu er efsta sætið þeirra, en ef SA nær stigi eða stigum á laugardag ráðast úrslitin í sunnudagsleiknum.
Barátta um að forðast fall úr 1. deildinni
Karlalið Þórs í körfuknattleik er í hörkubaráttu við að forðast fall úr 1. deildinni, næstefstu deild. Liðið hefur unnið þrjá leiki, eins og Hamar, en Fylkir er fyrir neðan þessi lið með tvo sigra. Fjórar umferðir eru eftir og á laugardag sækja Þórsarar Fjölnismenn heim í Grafarvoginn.
- 1. deild karla í körfubolta, 19. umferð
Dalhús í Grafarvogi kl. 18:30
Fjölnir - Þór - Útsending: KKÍ TV1 á Sýn
Opin dagskrá (til 1. mars)
Fjölnir er í 6. sæti deildarinnar með 11 sigra í 18 leikjum, en Þór í 10. sætinu með þrjá sigra. Fjölnismenn fóru með sigur af hólmi í fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri í nóvember, 121-115.