Fara í efni
Mannlíf

KA/Þór gerði margt vel en Valur í úrslit

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, til vinstri, og Anna Þyrí Halldórsdóttir sækja að Valsmarkinu í gærkvöldi.
Myndir: J.L. Long

Stelpurnar í KA/Þór stóðu lengi vel í leikmönnum Vals í undanúrslitum bikarkeppninnar í handbolta í gærkvöld en urðu á endanum að sætta sig við sjö marka tap, 29:22. Valur leikur því til úrslita á laugardag gegn Haukum sem sigraði Fram í gær.

Valsmenn byrjuðu af miklum krafti og náðu fljótlega þriggja marka forskoti, fyrst 3:0 og svo 4:1 en leikmenn KA/Þórs létu það ekki slá sig út af laginu og jöfnuðu 5:5 þegar átta mín. voru búnar. Valsmenn sigldu fram úr á ný, þó ekki langt, en munurinn í hálfleik var þrjú mörk, 16:13.

KA/Þór gerði tvö fyrstu mörk seinni hálfleiks, munurinn þá allt í einu orðinn eitt mark og þegar 10 mín. voru liðnar var tveggja marka munur. Þá tók bilið hins vegar að breikka jafnt og þétt. Mest munaði níu mörkum, 28:19, fáeinum mínútum fyrir leikslok.

Mun meiri breidd er í leikmannahópi Vals; þegar 20 mín. voru liðnar af leiknum höfðu 12 Valsarar komið við sögu en Jónatan þjálfari KA/Þórs gat ekki leyft sér slíkan munað. Það tók sinn toll í seinni hálfleik.

Margt var prýðilegt í leik KA/Þórs. Varnarleikurinn reyndar ekki eins öflugur og stundum áður en sóknin var góð lengi framan af. Þegar á leið – þreytan þá ugglaust farin að segja til sín – gerðu stelpurnar hins vegar of mörg klaufaleg mistök í sókninni og Valsliðið er eldsnöggt að refsa í slíkum tilvikum. Sigur Vals var mjög sanngjarn en leikmenn KA/Þórs geta þó að mörgu leyti ágætlega unað við frammistöðuna og leikur sem þessi er mikilvæg reynsla.

„Frábærar í langan tíma“

Jónatan Þór Magnússon þjálfari KA/Þórs var mjög ánægður með liði sitt þrátt fyrir tapið. „Eins skringilega og það hljómar þá fannst mér við vera frábærar í langan tíma. Ekki nógu langan, en það sem ég vonaðist eftir fékk ég,“ sagði Jónatan í viðtali við Vísi.

„Mér fannst við geisla af krafti og orku og þannig sá ég þetta fyrir mér. Mér fannst við vera óheppnar að vera undir í hálfleik því við áttum fín færi og skot sem fóru í stöng eða slá. En sóknarlega í fyrri hálfleik fannst mér við vera frábærar. Við hefðum þurft aðeins þéttari vörn þá en heilt yfir fannst mér við vera bara nokkuð góðar,“ sagði Jónatan. „Svo verður þetta erfiðari í seinni hálfleik þegar vörnin hjá þeim þéttist. En ég er alls ekki óánægður með það sem við vorum að gera. Auðvitað eru tapaði boltar og annað sem ég hefði viljað sleppa. Þá hefðum við hangið inni í þessu og gefið þeim leik. Til að vinna Val þá þurfa þær að vera ekki á sínum degi og við að vera frábærar. Mér fannst við vera frábærar en þá voru þær það bara líka.“

  • Ítarlegt viðtal Vísis við Jónatan má sjá hér:

„Þegar við erum góðar finnst mér við vera frábærar“

Susanne Denise Pettersen, til vinstri, og Tinna Valgerður Gísladóttir skjóta að Valsmarkinu í leiknum. Myndir: J.L. Long

Mörk KA/Þórs: Anna Þyrí Halldórsdóttir 4, Tinna Valgerður Gísladóttir 4 (þar af 1 víti), Susanne Denise Pettersen 4, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, 4, Elísa Björg Guðmundsdóttir 1, Trude Brelstrud Hakonsen 1, Lydía Gunnþórsdóttir 1, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 1, Kristín A. Jóhannsdóttir 1, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 9 (25,7%) – Selma Sigurðardóttir 0.

Mörk Vals: Þórey Anna Ásgeirsdóttir 8 (þar af 5 víti), Lovísa Thompson 6, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 3, Guðrún Hekla Traustadóttir 2, Elísa Elíasdóttir 2, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 2/1, Thea Imani Sturludóttir 1, Arna Karitas Eiríksdóttir 1, Lilja Ágústsdóttir 1, Mariam Eradze 1, Hildur Björnsdóttir 1, Sara Lind Fróðadóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 10, 34,5% – Elísabet Millý Elíasardóttir 0.

Öll tölfræði úr leiknum frá HBStatz