Fara í efni
Mannlíf

Alþjóðleg spilavika á Amtsbókasafninu

Alþjóðleg spilavika hefst í dag og af því tilefni verða fjórir viðburðir, sem henta allri fjölskyldunni, á Amtsbókasafninu á Akureyri næstu daga, „þar sem safnkostur Amtsins fær m.a. að njóta sín, en á safninu er til fjöldinn allur af spilum sem henta öllum aldri og er hægt að spila á safninu eða grípa með heim,“ segir í tilkynningu. 

Þar segir ennfremur:

  • Mánudaginn 8. nóvember kl. 17.00-18.00
    Spilaklúbbur fyrir 9-13 ára – Hópurinn ætlar að hittast og spila við langborðið í barnadeildinni. Engin þörf er að skrá sig. Öll á aldrinum 9-13 ára hjartanlega velkomin.
  • Miðvikudaginn 10. nóvember kl. 16:30-18:30
    Borðspil fyrir allan aldur – Í boði verða spil fyrir bæði börn og fullorðin úr spilahillu bókasafnsins en gestir eru jafnframt hvattir til þess að koma með sín eigin spil og kenna öðrum. Öll hjartanlega velkomin!
  • Fimmtudaginn 11. nóvember kl. 16.00-18.00
    Skiptimarkaður með spil og púsl – Ertu komin(n) með leið á að leggja lestarteina í Norður-Ameríku? Kanntu allar spurningarnar í Trivial Pursuit? Ertu alltaf að púsla sama púslið aftur og aftur? Komdu með gömlu spilin og púslin og skiptu þeim út fyrir „ný“! Þú mátt koma með eins mörg spil og púsl og þú vilt og þú mátt líka fara með eins mörg og þig lystir, óháð því hversu mikið þú lagðir í púkkið. Öll velkomin!
  • Fimmtudaginn 11. nóvember kl. 16:30
    Spilasögustund – Hefðbundin sögustund á Amtsbókasafninu, en eftir sögustundina grípum við spil safnsins og spilum saman.