Akureyri er frábær en má ekki staðna
Berglind Ósk Guðmundsdóttir hefur aðeins setið nokkra daga í stóli bæjarstjóra en segir skýra framtíðarsýn liggja fyrir. Hún vill efla atvinnulíf, styrkja leikskóla- og menntakerfi og gera Akureyri sýnilegri gagnvart ríkinu. Að hennar mati er stærsta hættan sú að bæjarfélagið sætti sig við að hlutirnir séu „bara ágætir“.
Þegar Berglind talar um framtíð Akureyrar fer ekki á milli mála að hún ber sterkar tilfinningar til bæjarins. Hér hefur hún menntað sig, byggt upp líf sitt og stofnað fjölskyldu. Nú vill hún leggja sitt af mörkum til að næsta kynslóð sjái sömu tækifæri og hún sá þegar hún flutti norður sem tvítug námskona. „Ég ætla að vera bæjarstjóri allra bæjarbúa,“ segir Berglind Ósk sem tók við embættinu um síðustu mánaðamót. Þó að hún hafi aðeins verið nokkra daga í starfi segist hún þegar hafa fundið hversu umfangsmikið hlutverkið er. Fyrstu vikurnar hafi einkennst af fundum, kynningum og því að kynnast bæði starfsfólki og stjórnsýslu bæjarins. „Þetta er mikil ábyrgð. Það eru margir starfsmenn og mörg verkefni sem þarf að setja sig inn í en þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt.“
Þetta er síðari hluti viðtals akureyri.net við Berglindi Ósk.

Berglind í pontu á 17. júní hátíðarhöldunum í Lystigarðinum. Mynd: Þorgeir Baldursson
Bæjarstjórinn sterk rödd út á við
Síðustu bæjarstjórar Akureyrar hafa ekki verið virkir stjórnmálamenn heldur faglegir stjórnendur sveitarfélagsins. Því hefur ráðning Berglindar vakið spurningar um hvort embættið verði pólitískara en áður. Berglind segir að það hafi verið meðvituð ákvörðun meirihlutans að breyta áherslum í hlutverkinu. Hugmyndin sé þó ekki að bæjarstjórinn verði talsmaður eins flokks heldur sterkari rödd fyrir Akureyri út á við.
„Við þurfum að geta stigið fastar til jarðar gagnvart ríkinu og þeim aðilum sem taka ákvarðanir sem hafa áhrif á okkar samfélag. Mér finnst stundum eins og Akureyri sé ekki nægilega sýnileg í umræðunni þrátt fyrir allt það sem hér er til staðar,“ segir Berglind. Að hennar mati þarf að fylgja eftir svæðisborgarhlutverki Akureyrar með raunverulegum aðgerðum. „Það þarf að standa vörð um Sjúkrahúsið á Akureyri, heilsugæsluna og menntastofnanirnar okkar. Þetta mega ekki bara vera falleg orð á blaði.“

Berglind Ósk tók við starfi bæjarstjóra á Akureyri um síðustu mánaðamót. „Þetta er mikil ábyrgð. Það eru margir starfsmenn og mörg verkefni sem þarf að setja sig inn í en þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt.“ Mynd: SNÆ
Sterkt atvinnulíf forsenda góðrar þjónustu
Þegar talið berst að framtíð bæjarins nefnir hún atvinnumál fyrst. Að hennar mati snýst málið ekki aðeins um fyrirtæki og atvinnulóðir heldur líka um það hvort ungt fólk sjái sér framtíð á Akureyri. „Okkur vantar fleiri atvinnutækifæri og fleiri atvinnulóðir. Við þurfum að skapa aðstæður þannig að fólk vilji flytja hingað og byggja hér upp.“ Hún segir sterkt atvinnulíf vera forsendu þess að hægt sé að reka góða þjónustu. „Þannig byggjum við upp öflugt samfélag.“
Spurð hvaða atvinnugreinar hún sjái helst fyrir sér á Akureyri segir Berglind að henni finnist ekki vera hlutverk sveitarfélagsins að ákveða hvaða fyrirtæki eða atvinnugreinar eigi að koma á svæðið, heldur að skapa aðstæður þannig að fyrirtæki vilji setjast að á Akureyri. Hlutverk bæjarins sé fyrst og fremst að skapa aðstæður þar sem fyrirtæki geti vaxið og dafnað. Hún bendir þó á að tækifærin séu fjölmörg, meðal annars á Dysnesi þar sem fyrirhuguð er frekari atvinnuuppbygging. Þá telur hún gagnaver og tengda tækniþróun geta skapað ný tækifæri fyrir svæðið á komandi árum.
Viðtalstímar bæjarfulltrúa teknir upp aftur
Mennta- og leikskólamál eru einnig ofarlega á forgangslista nýs meirihluta. Berglind segir góða skóla og örugga leikskólaþjónustu skipta miklu máli þegar fólk velur sér búsetu og byggir upp framtíð fyrir fjölskyldu sína. Kannski er það ekki tilviljun að þessi mál séu henni hugleikin. Það voru einmitt leikskólamálin sem urðu til þess að hún fór sjálf að taka virkari þátt í stjórnmálum þegar hún varð ung móðir á Akureyri. Þá vill hún einnig leggja aukna áherslu á málefni eldri borgara. „Ég lagði mikið upp úr því í kosningabaráttunni að hitta eldri borgara og hlusta á þeirra sjónarmið. Við þurfum að gera enn betur þar.“
Ein af fyrstu breytingunum sem nýr meirihluti hefur boðað er að bæjarbúar geti á ný bókað viðtalstíma hjá bæjarfulltrúum, en sú þjónusta lagðist af í heimsfaraldrinum. Berglind segir mikilvægt að bæjarbúar finni að það sé stutt í kjörna fulltrúa og að ábendingar þeirra fái raunverulega áheyrn. „Við viljum opna dyrnar aftur og eiga beint samtal við fólk.“

Berglind er vön því að vera með marga bolta á lofti. Þessi mynd er tekin þegar hún sat á Alþingi. Sonurinn Anton Dreki er í fangi hennar. Mynd: úr einkasafni
Hætt við stöðnun ef ekki er sótt fram
Þrátt fyrir að Berglind lýsi Akureyri sem einu besta samfélagi landsins telur hún að stærsta hættan felist í því að sætta sig við að allt sé bara „nógu gott“. „Akureyri er frábær eins og hún er en við þurfum að halda áfram að sækja fram. Ef við ákveðum bara að þetta sé fínt eins og það er, þá er hætt við að við stöðnum.“ Að hennar mati þarf bærinn að halda áfram að vaxa og dafna. Hún segir fjölgun íbúa mikilvæga til að styrkja tekjugrunn sveitarfélagsins og þar með þá þjónustu sem bæjarbúar njóta. Sérstaklega vill hún sjá fleiri ungar fjölskyldur velja Akureyri til búsetu. „Við viljum fá unga fólkið heim aftur, hvort sem það er af höfuðborgarsvæðinu eða erlendis frá.“
Hún bendir á að innviðir bæjarins séu sterkir og að víða sé svigrúm til frekari vaxtar, meðal annars í skólakerfinu. Á sama tíma leggur hún áherslu á að markmiðið sé ekki að breyta Akureyri í eitthvað allt annað en hún er í dag. „Í kosningabaráttunni var slagorðið einfalt: Gerum góðan bæ betri og ég held að allir séu sammála því.“ Að hennar mati snýst verkefnið því ekki um að kollvarpa því sem vel hefur tekist til, heldur byggja ofan á styrkleika bæjarins og gera enn betur. Þá telur Berglind mikilvægt að halda áfram uppbyggingu íbúðahverfa og skoða leiðir til að lækka kostnað við nýbyggingar. „Við þurfum að tryggja að fólk geti eignast eigið húsnæði og að ekki verði aðeins byggð hverfi fyrir efnameiri hópa.“
Verk fylgi orðum
Að lokum er ekki hægt að sleppa Berglindi án þess að spyrja hana hvernig hún vilji að hennar verði minnst þegar kjörtímabilinu lýkur. Svarið kemur umsvifalaust. „Að verk hafi fylgt orðum. Ég vil að fólk upplifi að við höfum staðið við það sem við sögðumst ætla að gera.“ Hún segist ekki sækjast eftir því að um hana sjálfa verði rætt heldur að árangurinn sjáist á bænum. „Þá vil ég að Akureyri sé sterkari og sýnilegri þegar þessu tímabili lýkur. Þetta er einstakur staður til að búa á og fleiri þurfa að vita það.“
Þetta var síðari hluti viðtals akureyri.net við Berglindi Ósk.