„Það var bara kominn tími á breytingar“
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir lét nýlega af störfum sem organisti í Akureyrarkirkju eftir nær tuttugu ára tengsl við kirkjuna. Að baki er fjölbreyttur tónlistarferill sem hófst með litlu Yamaha-orgeli í æsku og leiddi hana meðal annars í Hóladómkirkju, til Reykjavíkur og í meistaranám í Kaupmannahöfn. Nú hefur hún hafið nýjan kafla í Tónlistarskólanum á Akureyri og segist vera á afar góðum stað í lífinu.
„Það var bara kominn tími á breytingar,“ segir Sigrún Magna þegar hún er spurð að því hvers vegna hún ákvað að segja starfi sínu í Akureyrarkirkju lausu. Sigrún lauk störfum 31. ágúst eftir að hafa starfað þar í fullu starfi sem organisti frá árinu 2009, en tengsl hennar við kirkjuna ná aftur til ársins 2007. Eftir svo langan tíma í sama starfi segir hún að hana hafi einfaldlega langað til að færa sig um set. Hún segist afar ánægð með breytinguna og bætir við glettin að það sé líka annar kostur við nýja vinnustaðinn. „Uppi á svölunum í Akureyrarkirkju gat oft orðið nokkuð kalt að sitja við orgelið þegar kalt var úti. Ég er því nokkuð sátt við að vera komin í hlýrra húsnæði hér í Hofi.“

Sigrún ásamt eiginmanninum Snorra og syni þeirra Hákoni. Mynd: úr einkasafni
Ung organisti í Hóladómkirkju
Sigrún er fædd og uppalin í Grýtubakkahreppi og byrjaði að læra á orgel aðeins átta ára gömul. Ástæðan var einföld. Vinkona hennar sagðist ætla í orgelnám og Sigrún vildi líka fá að prófa. Móðir hennar tók aukavinnu til að safna fyrir litlu Yamaha-rafmagnsorgeli og Sigrún hóf nám hjá Björgu Sigurbjörnsdóttur. Hún minnist þessa fyrsta kennara síns með mikilli hlýju og segir Björgu hafa verið frábæran kennara sem hafi lagt góðan grunn. Síðar lærði Sigrún á píanó, þverflautu og blokkflautu áður en hún sneri aftur að orgelinu um tvítugt.
Þótt tónlistin hafi alltaf verið stór hluti af lífi hennar hafði hún ekki endilega ætlað að gera hana að ævistarfi. Hún fór á málabraut í Menntaskólanum á Akureyri og sá fyrir sér háskólanám, jafnvel á sviði viðskipta. En tilviljun réð því að hún fór að kenna tónlist. Í hljóðfræðitíma í Tónlistarskólanum á Akureyri hitti hún konu sem reyndist vera skólastjóri Tónlistarskóla Skagafjarðar. Hana vantaði kennara næsta vetur. Sigrún sló til og flutti í Skagafjörð, ásamt unnustanum og núverandi eiginmanni, Snorra Snorrasyni, þar sem hún hóf að kenna á píanó, blokkflautu og þverflautu. Þá var hún aðeins 21 árs og á sama tíma tók hún einnig að sér starf organista í Hóladómkirkju. Það reyndist henni nokkur áskorun. „Ég bara var of ung,“ segir hún þegar hún rifjar þetta upp.
Kirkjutónlistin var henni framandi og þótt hún hefði farið í messur með foreldrum sínum á jólum var hún ekki vön að starfa innan kirkjunnar. Sigrún fór að læra hjá Birni Steinari Sólbergssyni, þáverandi organista í Akureyrarkirkju, sem hún segir að hafi hjálpað sér gríðarlega mikið. Eftir þrjú ár í Skagafirði fluttu þau Snorri svo til Reykjavíkur þar sem hún fór í Tónskóla þjóðkirkjunnar og Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lærði á orgel hjá Herði Áskelssyni og á píanó hjá Jónasi Sen, útskrifaðist sem kantor og lauk síðar einleiksáfanga.

Í barnastarfi við orgelið í Akureyrarkirkju.
Vildi verða betri tónlistarmaður
Sigrún og Snorri bjuggu í Reykjavík í átta ár. Á þeim tíma starfaði Sigrún meðal annars í Breiðholtskirkju og Bessastaðakirkju, með Álftaneskórnum og barnakór í Háteigskirkju, auk þess að leysa af í Grafarvogskirkju. „Mig langaði til að verða betri tónlistarmaður, mig langaði bara til þess að verða ógeðslega fær í því sem ég var að gera,“ segir Sigrún þegar hún útskýrir þá ákvörðun sína að sækja um meistaranám í kirkjutónlist í Kaupmannahöfn. Það var stór ákvörðun því hjónin voru búin að kaupa sér íbúð og Snorri var í góðri vinnu sem sérfræðingur í fjárhagskerfi Reykjavíkurborgar. Faðir Sigrúnar hvatti hana hins vegar til að láta slag standa og minnti hana á að þau gætu alltaf komið heim aftur. Þau seldu því allt og fluttu til Danmerkur árið 2005.
Lífið í Kaupmannahöfn var gott en töluvert frábrugðið því sem þau áttu að venjast frá Reykjavík. Þau bjuggu í um 40 fermetra íbúð og hjóluðu allra sinna ferða. Snorri gat tekið vinnuna með sér og sinnt henni í fjarvinnu. Lífið var einfalt og þau skulduðu ekkert. Námið var vissulega krefjandi en Sigrún segist hafa notið tímans úti.

Sigrún við orgelið í Akureyrarkirkju árið 2010. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Fjölbreytt starf í Akureyrarkirkju
Á meðan Sigrún var enn við nám í Danmörku hafði Björn Steinar samband við hana og spurði hvort hún gæti komið heim til að sjá um sumartónleika í Akureyrarkirkju. Hún þáði það og þegar starf organista við kirkjuna var auglýst um haustið sótti hún um og fékk. Sigrún fékk svigrúm til að ljúka náminu í Kaupmannahöfn og frá júní 2009 var hún komin í fullt starf við Akureyrarkirkju. Starfið var draumastaða á þeim tíma. Hjónin vildu fara aftur norður því eins og áður segir er Sigrún úr Grýtubakkahreppi en Snorri frá Hvammi í Eyjafjarðarsveit. Það var því mikið gleðiefni fyrir þau að fá tækifæri til að flytja aftur nær heimahögunum. Árið 2013 eignuðust þau soninn Hákon en hann er að sögn móður sinnar flinkur gítarleikari og syngur vel, auk þess sem hann hefur talsverð áhrif á hvaða tónlist fjölskyldan hlustar á heima.
Þegar Sigrún lítur yfir árin í Akureyrarkirkju á hún erfitt með að nefna eitt verkefni sem stendur upp úr. Starfið hafi verið svo fjölbreytt. Hún nefnir þó sérstaklega samstarfið við Eyþór Inga, sem starfaði einnig sem organisti við kirkjuna. Hún segir að það sé ekki sjálfgefið fyrir organista að hafa annan organista sér við hlið á sama vinnustað. Þau gátu skipt með sér verkefnum, leyst hvort annað af og haft faglegan stuðning hvort af öðru. Það skipti miklu máli, meðal annars á annasömum tímum eins og um jól.
Tónlistarstarfið í kirkjunni var líka umfangsmikið og líflegt. Þar voru á tímabili starfræktir fjórir kórar: yngri og eldri barnakór, stúlknakór og kirkjukór. Við bættust tónleikar, kirkjulistavika og fjölbreytt samstarf við aðra tónlistarmenn, meðal annars Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Sigrún segir starf organista vera mun viðameira en að mæta bara í kirkjuna og spila við athafnir. Í því sé líka fólgin mikil skipulagning og undirbúningur. Þegar messa er skipulögð þurfi tónlistin að tengjast ritningarlestrum, prédikun og öðru efni dagsins þannig að úr verði heildstæð athöfn. Organistinn sé þannig ekki aðeins tónlistarmaður heldur að hluta til verkefnastjóri, þessu átti kirkjugestir sig ekki endilega á.

Sigrún er ekki hætt kirkjustarfi því hún er enn organistií Möðruvallaklausturskirkju og verður það áfram. Hér er hún með kirkjukórnum. Mynd: úr einkasafni
Ekki hætt í kirkjustarfi
Þótt Sigrún hafi nú kvatt Akureyrarkirkju er hún alls ekki hætt í kirkjustarfi. „Þetta var enginn aðskilnaður kirkju og Sigrúnar,“ segir hún hlægjandi því kirkjutónlist verður áfram hluti af lífi hennar. Frá árinu 2011 hefur hún verið organisti í Möðruvallaklausturskirkju og verður það áfram. Upphaflega átti hún aðeins að leysa þar af í stuttan tíma en starfið reyndist henni svo skemmtilegt að hún er þar enn. Á þeim tíma hefur kirkjukórinn vaxið úr um 18 manns í yfir 40 manns og Sigrún segir starfið eitt það skemmtilegasta sem hún hefur tekið að sér á starfsævinni. Kórinn hefur ráðist í fjölbreytt verkefni, meðal annars haldið tónleika í skemmum og farið í sálmamaraþon þar sem sungið var í 16 kirkjum í Skagafirði á einni helgi. Þess á milli tekur hópurinn fyrir krefjandi klassíska tónlist. Sigrún segir fjölbreytnina einmitt gera starfið svo skemmtilegt.
Frá kirkjuorgelinu í nýjan kafla
Nú er Sigrún komin í 80 prósenta starf við Tónlistarskólann á Akureyri. Hún þekkir vel til innan veggja skólans því hún en hún hafði kennt þar í hlutastarfi um árabil. Í nýja starfinu kennir hún meðal annars á orgel, er meðleikari í söngdeild og kemur að starfi barna- og unglingasöngdeildar skólans. Eitt af því sem hún kann hvað best að meta í nýja starfinu er að fá að verja meiri tíma við hljóðfærin. Í kirkjustarfinu hafi oft farið mikill tími í tölvuvinnu, skipulagningu, styrkumsóknir og alls kyns utanumhald. Nú sé hún aftur meira að spila. Hún segir líka gott að vera komin á vinnustað með fjölda annarra tónlistarmanna sem hún getur rætt við um verkefnin og fengið faglegan stuðning frá. „Núna er ég bara mest að spila og mér finnst gaman að æfa mig,“ segir Sigrún. Fram undan eru ýmis skemmtileg verkefni utan kennslunnar. Í október eru fyrirhugaðir tónleikar með kirkjukórnum á Möðruvöllum, í lok nóvember ætlar hún að halda orgeltónleika í Hafnarfjarðarkirkju og í febrúar eru fyrirhugaðir tónleikar þar sem hún leikur á orgel með vinkonu sinni, Ave Köru Sillaots, organista í Ólafsfirði og Siglufirði, sem leikur á harmonikku.
Þá bíður hennar einnig orgelverk sem Steingrímur Þórhallsson samdi sérstaklega fyrir hana. Sigrún segist ekki enn hafa haft tíma til að æfa verkið og flytja það en það standi til bóta. Hún segist finna að löngunin til að takast á við ný verkefni sé farin að gera vart við sig á ný. Nú þegar hún verji meiri tíma í hljóðfæraleik og æfingar sé líka meira svigrúm til þess. Sigrún er því greinilega hvergi nærri hætt að takast á við nýjar áskoranir og þegar hún er spurð hvernig henni líði með breytingarnar er svarið einfalt: „Veistu, ég er bara hamingjusöm.“

Sigrún segir starfið með kórnum í Möðruvallarklausturskirkju vera eitt það skemmtilegasta sem hún hefur tekið að sér á starfsævinni.