Fara í efni
Mannlíf

Afrakstur kvennakvölds Þórs og KA 5,6 milljónir

Frá afhendingu styrksins. Frá vinstri: Eva Björk Halldórsdóttir úr kvennakvöldsnefndinni, Kári Þorleifsson frá körfuknattleiksdeild Þórs, Lydía Gunnþórsdóttir og Bergrós Guðmundsdóttir frá KA/Þór, Auður Pétursdóttir og Kara Árnadóttir frá blakdeild KA, Dóra Sif Sigtryggsdóttir frá Þór/KA og Linda Guðmundsdóttir frá kvennakvöldsnefndinni.
Árlegt Kvennakvöld Þórs og KA var haldið í vor og í vikunni var tilkynnt að afrakstur kvöldsins að þessu sinni voru 5,6 milljónir króna. Fénu er skipt jafnt á milli fjögurra kvennaliða félaganna í boltaíþróttum; fótboltaliðs Þórs/KA, handboltaliðs KA/Þórs, blakliðs KA og körfuboltaliðs Þórs. Hvert lið fær því 1,4 milljónir að þessu sinni og voru styrkirnir formlega afhentir fulltrúum liðanna fyrir leik Þórs/KA og ÍBV í Bestu deildinni í fótbolta á sunnudaginn.
 
„Markmið úthlutunar: Að efla kvennastarf, styrkja aðstöðu, skapa tækifæri og tryggja að konur og stúlkur í íþróttum hafi aðgang að öflugum og faglegum umhverfum,“ segir í tilkynningu frá kvennakvöldsnefndinni.
 
Þar segir að samkoman hafi að þessu sinni verið haldin „með frábærri þátttöku og einstökum stuðningi frá samfélaginu. Við erum stolt af því að tilkynna að samtals söfnuðust 5,6 milljónir króna og hver deild fær því 1.400.000 krónur.“
 
Nefndin vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sjálfboðaliða sem komu að undirbúningi og framkvæmd kvöldsins. Einnig færum við okkar bestu þakkir til allra styrktaraðila kvöldsins,“ segir í tilkynningunni. Í kvennakvöldsnefndinni eru Linda Guðmundsdóttir, Eva Björk Halldórsdóttir og María Kristín Davíðsdóttir.