Fara í efni
Íþróttir

Ógildi úrskurðinn eða taki málið upp aftur

Ljósmynd: Þórir Tryggvason.

Forsvarsmenn handboltaliðs KA/Þórs hafa farið fram á að úrskurður áfrýjunardómstóls HSÍ í kærumáli Stjörnunnar gegn KA/Þór og HSÍ verði ógiltur eða endurupptekinn og í fréttatilkynningu sem send var út í morgun kemur fram að þeir telja dómara áfrýjunardómstóls HSÍ vanhæfa til að fjalla um málið að nýju.

KA/Þór krefst þess að framhald málsins verði unnið hratt og örugglega til að það hafi ekki áhrif niðurstöðu deildarkeppninnar eða úrslitakeppni Olís deildar Íslandsmótsins.

Áfrýjunardómstóll HSÍ úrskurðaði á þann veg að leikurinn skyldi fara fram aftur en dómstóll HSÍ hafði áður ákveðið að úrslit leiksins stæðu.

Fréttatilkynning sem KA/Þór sendi frá sér í morgun er svohljóðandi í heild:

„KA/Þór lýsir yfir furðu sinni með vinnubrögð áfrýjunardómstóls HSÍ og skrifstofu HSÍ.

Forsvarsmönnum KA/Þór var aldrei tilkynnt um að Stjarnan hefði áfrýjað dómi dómstóls HSÍ sem féll í málinu þann 1. mars 2021 og hvað þá heldur að áfrýjunardómstóll HSÍ væri að taka málið fyrir. Barst KA/Þór fyrst vitneskja um málið eftir að dómur var fallinn. Augljóst er að ekkert félag innan íþróttahreyfingarinnar getur búið við það að fá ekki að taka til varnar í máli sem að því snýr. Rétt er að benda á að vegna málsmeðferðarreglna HSÍ er KA/Þór varnaraðili í málinu, þrátt fyrir að Stjarnan kæri framkvæmd leiksins, framkvæmd sem sama félag bar ábyrgð á.

KA/Þór hefur nú þegar óskað eftir því að dómur áfrýjunardómstóls HSÍ verði ógiltur eða endurupptekinn. Liggur í augum uppi að mati KA/Þór að þeir dómarar áfrýjunardómstólsins sem komist hafa niðurstöðu og opinberað hana, án þess að gefa KA/Þór færi á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, teljist vanhæfir til að fjalla um málið að nýju. Er KA/Þór enn fremur reiðubúið að fara með málið lengra enda eiga öll félög innan íþróttahreyfingarinnar að standa jöfnum fæti fyrir dómstólum sinna sérsambanda.

Ljóst er að endanleg niðurstaða þessa máls mun hafa mikil áhrif á lokaniðurstöðu Olís-deildar kvenna. Það er krafa KA/Þórs að framhald málsins verði unnið fljótt og örugglega þannig að það komi ekki til með að hafa áhrif á áðurnefnda lokaniðurstöðu mótsins eða önnur og bein áhrif á úrslitakeppnina í Olís-deild kvenna.“

Smellið hér til að lesa frekar um málið.