Fara í efni
Íþróttir

Þórsararnir ungu töpuðu fyrir Val

Páll Nóel Hjálmarsson, til vinstri, og Ólafur Snær Eyjólfsson. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar töpuðu fyrir Val, 129:84, í efstu deild Íslandsmótsins í körfubolta (Subway deildinni) í Reykjavík í gærkvöldi. Þórsliðið er þegar fallið úr deildinni.

  • Skorið í hverjum leikfjórðungi: 32:22 – 40:19 – 72:41 – 31:26 – 26:17 – 129:84

Vitað mál var að róðurinn yrði þungur fyrir Þórsara. Erlendur atvinnumennirnir hafa verið sendir heim, fyrir utan ungan Dana sem bættist óvænt í hópinn í vetur, en liðið er nú borið uppi af ungum leikmönnum sem ætluð eru aðalhlutverk í framtíðinni.

August Emil Haas skoraði 19 stig í leiknum en skv. tölfræðinni lék Páll Nóel Hjálmarsson best Þórsara, skoraði 15 stig, tók tvö fráköst og átti tvær stoðsendingar; framlagsstig hans voru 14.

Smellið hér til að sjá alla tölfræðina