Þórsarar steinlágu fyrir meisturum Víkings
Þórsarar töpuðu 6:0 fyrir Íslandsmeisturum Víkings í Reykjavík í kvöld í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Eins og tölurnar gefa til kynna höfðu meistararnir mikla yfirburði á heimavelli sínum og sigurinn var vitaskuld afar sanngjarn; Þórsarar áttu nokkra góða sóknarspretti en varnarleikur liðsins í heild var afleitur og Víkingar hefðu getað gert enn fleiri mörk.
Fyrsta markið kom strax á 10. mínútu og eftir tæpan hálftíma var staðan orðin 3:0. Hafi fyrsta markið verið högg var leiknum í raun lokið þegar mörk meistaranna voru orðin þrjú; Víkingsliðið er slík maskína að nánast er ógjörningur er við að eiga eftir að það nær þægilegri forystu.
Fimm mínútum síðar komust Víkingar í 2:0 eftir einfalda sókn; löng sending varnarmanns fram völlinn, Óskar Borgþórsson lék inn á vítateig og sendi fyrir markið á Elías Má Ómarsson sem skoraði af stuttu færi.
Ekki liðu nema um það bil þrjár mínútur þar til staðan var orðin 3:0. Að þessu sinni var boltinn sendur úr miðri vörninni og skyndilega var Óskar Borgþórsson sloppin einn í gegn og skoraði framhjá Aroni Birki markverði Þórs. Sorglega auðveld mörk.
Staðan var 3:0 í hálfleik, Þórsarar komu býsna frískir út í seinni hálfleikinn en ekki voru nema fimm mín. búnar þegar Karl Friðleifur Gunnarsson gerði fjórða markið. Óskar og Elías Már endurtóku svo leikinn frá því í fyrri hálfleik, gerðu hvor sitt markið og úrslitin því 6:0.
Þórsarar hafa nú tapað þremur leikjum í röð; fyrst 4:0 fyrir Blikum úti, þar sem með ólíkindum var að Þór skoraði ekki í fyrri hálfleik og tölurnar gefa því vart rétta mynd af gangi leiksins, síðan 1:0 fyrir KA þar sem Þórsarar áttu skilið a.m.k. eitt stig, en annað var upp á teningnum í kvöld; Víkingar voru einfaldlega miklu betri.
Þór er í áttunda sæti með sex stig úr jafn mörgum leikjum, liðið hefur unnið tvo en tapað fjórum. Þrír tapleikjanna komu á útivelli gegn liðum sem spáð er toppbaráttu, Breiðablik, KR og Víkingi, og í því ljósi ekki óeðlileg að nýliðar tapi. Þeir áttu þó í fullu trú við Blikana lengst af en höfðu hins vegar ekki roð við KR og Víkingi.
Þórsarar jöfnuðu slæmt met í kvöld; 6:0 er stærsta tap þeirra í efstu deild og sú varð niðurstaðan í þriðja sinn í kvöld. Þór tapaði 6:0 fyrir KR í Reykjavík sumarið 1977, fyrsta árið sem félagið lék í efstu deild, og 6:0 fyrir ÍA á Akranesi sumarið 1993.