Fara í efni
Íþróttir

Þór/KA og KA heima - Þórsarar á útivelli

Þrír leikir eru fram undan í Bestu deildunum í knattspyrnunni í vikunni. Þór/KA á heimaleik gegn Breiðabliki á miðvikudag, KA á heimaleik gegn Val föstudag og Þór á útileik gegn Keflavík á föstudag.

MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ - fótbolti

Þór/KA hefur gengið brösuglega að safna stigum í upphafi leiktíðarinnar, en liðið er án sigurs í fyrstu fjórum umferðunum, auk þess að hafa fallið úr bikarkeppninni í 16 liða úrslitunum. Andstæðingarnir á miðvikudag, Breiðablik, féllu reyndar einnig úr bikarkeppninni í 16 liða úrslitunum eftir tap fyrir Þrótti. Bæði lið koma því með tap á bakinu úr síðasta leik sínum.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu,
    5. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn - gervigras á Ásnum) kl. 16
    Þór/KA - Breiðablik

Breiðablik er á toppi Bestu deildarinnar að loknum fjórum umferðum. Kópavogsliðið hefur unnið alla leiki sína í deildinni til þessa. Þór/KA er hins vegar við hinn enda deildarinnar, situr í 9. sætinu með tvö stig úr fyrstu fjórum leikjunum.

FÖSTUDAGUR 22. MAÍ - fótbolti

KA tekur á móti Val í 8. umferð Bestu deildar karla á föstudag. KA hefur klifrað upp töfluna með þremur sigrum í röð og situr nú í 6. sæti Bestu deildar karla með tíu stig að loknum sjö umferðum. KA vann FH á útivelli í síðustu umferð, en hafði þar á undan unnið ÍBV á heimavelli og Þór á útivelli. Áður hafði liðið náð sér í eitt stig í fyrstu fjórum umferðunum.

  • Besta deild karla í knattspyrnu,
    8. umferð
    KA-völlur (Greifavöllurinn sunnan við KA-heimilið – gervigras), kl. 18
    KA - Valur

Valur vann Breiðablik 3-2 á heimavelli í 7. umferðinni og er sætinu ofar en KA með 12 stig.

- - -

Þórsarar sækja Keflvíkinga heim á föstudag í 8,. umferð Bestu deildar karla. Eftir fjögur töp í röð hefur liðið sigið niður töfluna og er nú í 10. sætinu með sex stig að loknum sjö umferðum. Keflvíkingar eru þremur sætum ofar með átta stig, en þau hafa öll komið í síðustu fimm leikjum liðsins eftir að Keflvíkingar töpuðu tveimur fyrstu leikjum sínum í vor.

  • Besta deild karla í knattspyrnu,
    8. umferð
    HS Orku-völlurinn í Keflavík
    Keflavík - Þór

Keflvíkingar gerðu 1-1 jafntefli við Stjörnuna í síðustu umferð á meðan Þór tapaði heima, 1-2, fyrir Skagamönnum.